300 milljóna króna partýhús

Á sínum tíma var þetta aðal partý-húsið í Los Angeles.
Á sínum tíma var þetta aðal partý-húsið í Los Angeles. skjáskot/Estately

Þeir sem eru hrifnir af öllu sem er „vintage“ munu elska þetta hús sem er til sölu fyrir um 300 milljónir íslenskra króna í Los Angeles-sýslu. 

Húsið var byggt árið 1957 og hefur lítið breyst síðan.

Sama fjölskyldan hefur átt húsið síðan það var byggt en á sínum tíma voru allar helstu veislur haldnar í þessu húsi. Hverja helgi var húsið stappað af fólki og halda eigendurnir því fram að meira en 250.000 manns hafi mætt í veislur þar.

Svefnherbergis- og baðherbergisveggir hússins skarta enn sama veggfóðri og þegar húsið var fyrst byggt og allar innréttingar eru ósnertar.

Húsið er staðsett í hæðum Los Angeles-sýslu og hefur það frábært útsýni yfir fallegt landslag Kaliforníu-fylkis. Í bakgarðinum er svo skemmtileg sundlaug í laginu eins og Kalifornía.  

Húsið hefur ekkert breyst síðan árið 1957.
Húsið hefur ekkert breyst síðan árið 1957. skjáskot/Estately
skjáskot/Estately
Veggfóður á veggjum hússins er það sama og árið 1957.
Veggfóður á veggjum hússins er það sama og árið 1957. skjáskot/Estately
skjáskot/Estately
skjáskot/Estately
skjáskot/Estately
skjáskot/Estately
skjáskot/Estately
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál