Prada-bréfaklemma á 19 þúsund

Prada-bréfaklemman er venjuleg bréfaklemma á engu venjulegu verði.
Prada-bréfaklemman er venjuleg bréfaklemma á engu venjulegu verði. skjáskot/Barneys.com

Svo virðist sem það sé hægt að eyða peningum í allt bara ef viljinn er fyrir hendi. Nú hefur Prada hafið sölu á bréfaklemmu sem kostar rúmar 19 þúsund krónur. 

Bréfaklemman er til sölu á Barneys.com og er það líklega Prada-merkið og efniviðurinn sem skýrir hátt verðið. Bréfaklemman sem er búin til á Ítalíu er gerð úr ekta silfri og er 6,25 sentímetrar á lengd og 2,25 sentímetrar á breidd. 

Bréfaklemman er ætluð fyrir peninga og þar sem það lítur út fyrir að Íslendingar fái að halda 10 þúsund kallinum ættu kannski greifar landsins að gleðjast og skella sér á svona klemmu.

Prada-bréfaklemman er búin til á Ítalíu.
Prada-bréfaklemman er búin til á Ítalíu. skjáskot/Barneys.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál