Við Vatnsstíg 16-18 stendur glæsileg 136 fm íbúð í húsi sem var byggt 2008. Íbúðin er vel skipulögð með fallegum innréttingum. Úr íbúðinni er guðdómlegt útsýni yfir Sólfarið og Esjuna svo dæmi sé tekið.
Heimilið er smekklega innréttað þar sem hver hlutur á sinn stað eins og sést á myndunum.