Við Þórsgötu 10 í Reykjavík stendur afar fallegt hús sem er allt nýtekið í gegn. Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður sá um að innrétta íbúðirnar að innan en þær eru þrjár talsins. Litapallettan innahúss er guðdómlega falleg og látlaus. Gráir og grábláir tónar mætast á heillandi hátt.
Innréttingar eru ljósgráar og afar fallegar. Eins og sést á myndunum hefur mikið verið lagt í endurbæturnar en húsið er nú komið á sölu.