Fór á svakalegan megrunarkúr

Beyoncé á umræddum tónleikum í apríl 2018.
Beyoncé á umræddum tónleikum í apríl 2018. skjáskot/Instagram

Beyoncé átti tvíbura í júní árið 2017 og í apríl ári seinna var hún mætt á sviðið. Hún lagði mikið á sig til þess þess að komast í form aftur og fór á mjög strangan megrunarkúr sem hún grínast með í myndinni Homecoming á Netflix að hún hafi verið svöng á. 

Tímarit Opruh Winfrey greinir frá helstu atriðum í myndinni og meðal annars það að Beyoncé hafi verið á mataræði fyrir tónleikana í apríl í fyrra þar sem hún mátti ekki borða brauð, kolvetni, sykur, mjólkurvörur, vín, fisk né kjöt. „Ég er svöng,“ segir hún í myndinni. 

Beyoncé segist hafa átt mjög erfiða meðgöngu. Hún var orðin tæp 100 kíló þegar hún fór í bráðakeisara en hjartsáttur annars tvíburans hætti að slá nokkrum sinnum. Þrátt fyrir að einhverjum finnist mataræðið strangt var söngkonan vön mun strangari lífstíl. Segist Beyoncé hafa áttað sig á að hún gæti ekki verið móðir ungra tvíbura og sex ára barns og æft í 15 tíma á dag eins og áður. 

„Ég lærði dýrmæta lexíu, ég mun aldrei ýta sjálfri mér svo langt aftur,“ segir söngkonan í myndinni. Má meðal annars sjá einlægt myndband af henni þegar hún passar loksins í gamlan búning og hringir í eiginmann sinn, Jay-Z, og sýnir honum. 

Beyoncé eignaðist sitt annað og þriðja barn fyrir tæpum tveimur …
Beyoncé eignaðist sitt annað og þriðja barn fyrir tæpum tveimur árum. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál