Harry ætlar greinilega að passa upp á að hann verði í góðu formi þegar hann verður faðir næsta vor. Á meðan sumir nota heilsuúr til þess að fylgjast með hreyfingu sinni hefur Harry sést skarta svörtum heilsuhring á ferðalagi sínu um Ástralíu.
Hringurinn sem Harry er með er af gerðinni Oura. Hægt er að nota hringinn til þess að fylgjast með hreyfingu sinni en sérstök áhersla er lögð á svefn. Hringurinn tengist smáforriti þar sem má greina mismunandi svefnstig fólks.
Til eru nokkrar gerðir af hringnum en samkvæmt People er sá sem Harry notar af gerðinni Heritage. Á heimasíðu fyrirtækisins er hægt að panta slíkan hring fyrir 299 Bandaríkjadali eða 35 þúsund krónur.