Megrun skilar aldrei neinu

Anna Eiríksdóttir.
Anna Eiríksdóttir. Ljósmynd/Saga Sig

Anna Eiríksdóttir, deildarstjóri í Hreyfingu og eigandi annaeiríks.is, hefur áratugareynslu af því að hjálpa fólki að komast í betra líkamlegt form. Hún segir að megrun skili aldrei neinum árangri. Í nýjum pistli á Smartlandi fer hún yfir nokkur atriði sem gætu hjálpað þér að komast af stað: 

  • Vertu ávallt með markmið - það hjálpar manni að halda sér á beinu brautinni.

  • Ekki gleyma litlu sigrunum - mikilvægt er að verðlauna sig á góðan hátt þegar markmiði er náð því það er svo hvetjandi.

  • Finndu hreyfingu sem hentar þér - við ættum öll að hreyfa okkur á hverjum degi og því nauðsynlegt að finna sér hreyfingu sem manni finnst skemmtilegt að stunda.

  • Margt smátt gerir eitt stórt - æfingarnar þurfa ekki að vera langar til þess að skila árangri og enginn er fullkominn í mataræðinu, aðalmálið er að halda sér við efnið.

  • Finndu þér æfingafélaga eða hóp - það getur hjálpað mörgum að æfa með góðum hóp eða með skemmtilegum æfingafélaga eða fjarþjálfara eins og mér.

  • Forðastu að fara í átak eða megrun - það er skammtímalausn sem er erfið, leiðinleg og skilar almennt slökum árangri til lengri tíma litið.

  • Góðir hlutir gerast hægt - ekki ætla þér um of, njóttu þess að hugsa um heilsuna og líkamann með því að hreyfa þig reglulega og borða heilsusamlega því þá gerast góðir hlutir.

  • Njóttu þess að vera til - mundu að lifa í núinu og njóta þess í botn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál