Hvers vegna áttu að dæla í þig Omega-3?

Guðrún Bergmann.
Guðrún Bergmann. mbl.is/Árni Sæberg

„Fjölómettaðar Omega-3 fitusýrur eru sérlega mikilvægar fyrir líkamann og fá næringarefni hafa verið jafnmikið rannsökuð og þær. Þar sem líkaminn getur ekki framleitt þessar nauðsynlegu fitusýrur, þurfum við að fá þær úr fæðunni eða með því að taka þær inn sem bætiefni,“ segir Guðrún Bergmann í sínum nýjasta pistli á Smartlandi: 

Omega-3 fitusýrurnar eru aðallega unnar úr feitum kaldsjávarfiski, sem annaðhvort er þá gott að borða eða taka inn bætiefni sem unnin eru úr fiskinum. Fitan í fiskinum inniheldur tvær mikilvægar omega-3 fitusýrur, annars vegar DHA (docosahexaenoic-sýru) og hins vegar EPA (eicosapentaenoic-sýru). Bestu fituna (lýsið) er að fá úr fiski eins og villtum laxi, síld, hvítum fiski eins og þorski, sardínum og ansjósum.

Omega-fitusýrurnar er ýmist hægt að fá í fljótandi formi eða í hylkjum, annaðhvort bara Omega-3 eða blöndu af Omega 3-6-9. Sjálf tek ég reglulega inn til skiptis Omega-3 og svo Omega 3-6-9 blönduna frá NOW. Fyrir börnin er NOW svo með DHA-tuggutöflur með ávaxtabragði, sem flest börn eru sérlega ánægð með.

MUNURINN Á OMEGA-3 OG 6

Rannsóknir hafa leitt í ljós að mikinn fjölda fólks skortir Omega-3, svo og aðrar fitusýrur, en sá skortur getur haft alvarlegar afleiðingar á heilsufarið. Fyrir nokkrum árum var mikið fjallað um það að Omega-6 fitusýrurnar væru hættulegar, en hið rétta er að voðinn er bara vís ef hlutfall Omega-6 er miklu hærra í fæðu okkar en Omega-3. 

Omega-6 fitusýrurnar er að finna í fæðutegundum eins og steiktri fæðu, skyndibitamat (djúpsteiking) og tilbúnum réttum sem innihalda jurtaolíur eins og sojabaunaolíu, canola-olíu (seld undir því nafni, en einnig sem repju-, rapeseed- og grænmetisolía) sólblómaolíu, bómullarfræsolíu og maísolíu.

Þegar neysla á Omega-6 er of mikil, getur hún dregið úr getu líkamans til að melta (brjóta niður) heislusamlegar Omega-3 fitursýrur. Því skiptir mataræðið miklu máli þegar kemur að Omega-6 í líkamanum og jafnvægi milli þess og Omega-3.

OMEGA-3 FITUSÝRURNAR ERU MIKILVÆGAR

Rannsókn við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum leiddi í ljós að ein af tíu helstu dánarorsökum þar í landi er skortur á Omega-3 fitusýrum. Fitusýrur úr fiski draga meðal annars úr líkum á hjartasjúkdómum og heilablóðfalli, auk þess sem þær draga úr þunglyndiseinkennum, háþrýstingi, athyglisbresti (ADHD), liðverkjum, liðagigt og krónískum húðvandamálum eins og exemi.

Margir telja að Omega-3 hjálpi fólki að léttast, auka frjósemina og orkuna, auk þess sem Omega-3 er talið afar mikilvæg fyrir heilaþroska ungra barna.

HELSTU ÁHRIF OMEGA-3 Á HEILSUNA

Omega-3 fitusýrurnar eru taldar hafa ótalmörg mismunandi áhrif á heilsufar okkar, en hér koma 10 þau helstu.

1 – OMEGA-3 OG ADHD-EINKENNI

Rannsóknir hafa meðal annars sýnt að Omega-3 dregur úr ADHD-einkennum eins og eirðarleysi og árásargirni og betur gengur að ljúka verkefnum og stunda nám. Fitusýrur úr fiski eru taldar hafa þessi áhrif í gegnum heilastarfsemina, sem er ekki ólíklegt þar sem 60% heilans samanstanda af fitu.

2 – OMEGA-3 HÆGIR Á EINKENNUM ALZHEIMER’S

Fitusýrur sem nauðsynlegar eru heilastarfsemi er að finna í fiskifitunni og þær hægja ekki bara á vitrænni hnignun, heldur geta þær líka komið í veg fyrir almenna heilarýrnun hjá eldra fólki.

3 – OMEGA-3 SEM VÖRN GEGN KVÍÐA OG ÞUNGLYNDI

Þunglyndi er orðið eitt helsta heilsufarsvandamál heims í dag, en einkennin koma meðal annars fram sem depurð, sinnuleysi og almennt áhugaleysi á lífinu. Omega-3 fitusýrurnar, ekki hvað síst EPA-fitusýran virðist hafa mikil áhrif sem vörn gegn þunglyndi.

4 – OMEGA-3 GEGN LIÐAGIGT

Rannsóknir hafa leitt í ljós að Omega-3 fitusýrur hafa jafngóð áhrif á liðagigtareinkenni og ýmis steralaus bólgueyðandi lyf, auk þess sem fitusýrurnar teljast öruggari valkostur og hafa engar aukaverkanir.

5 – OMEGA-3 OG KRABBAMEIN

Ýmsar vísindarannsóknir hafa sýnt að fitusýrur úr fiski geta komið í veg fyrir og unnið bug á ýmsum tegundum krabbameina. Meðal annars kom í ljós að hjá þeim sem tóku sem mest af Omega-3 var 55% lægri tíðni ristilkrabbameins. Neysla á Omega-3 hefur líka verið tengd minni líkum á blöðruhálskirtils- og brjóstakrabbameinum.

6 – OMEGA-3 GETUR BÆTT AUGNHEILSUNA

DHA-fitusýran í Omega-3 er mikilvægt byggingarefni fyrir heila og sjónhimnu augna. Ef við fáum ekki nóg af DHA aukast líkur á sjónvandamálum. Einnig hefur verið sýnt fram á að nægilegt magn af Omega-3 dregur úr kölkun augnbotna, en hún er helsta orsök sjónskemmda og blindu í heiminum í dag.

7 – OMEGA-3 HEFUR GÓÐ ÁHRIF Á HJARTA- OG ÆÐAKERFIÐ

Rannsóknir hafa sýnt að fitusýrur úr fiski draga úr bólgum og geta hindrað eða haft bætandi áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma. Þær hafa einnig verið tengdar við betri batalíkur þeirra sem fá hjartaáföll.

8 – OMEGA-3 BÆTIR HEILSU SYKURSJÚKRA

Rannsóknir hafa sýnt að fitusýrur úr fiski draga úr líkum á heilabilun hjá þeim sem eru sykursjúkir, þar sem þær vernda frumurnar í dreka (hippocampus) heilans gegn eyðileggingu. Að auki draga þær úr skaða oxandi streituáhrifa á æðakerfi líkamans.

9 – OMEGA-3 STYRKIR HÚÐ OG HÁR

Áhrif Omega-3 geta verið mikil á húðina, sem er stærsta líffæri líkamans, meðal annars með stuðningi við fituuppleysanleg bætiefni og stuðla þannig að sléttri og teygjanlegri áferð húðar og draga þannig úr hrukkumyndun.

10 – OMEGA-3 STYRKIR STARFSEMI ÓNÆMISKERFISINS

Omega-3 fitusýrurnar styrkja almennt ónæmiskerfi líkamans. Því er mikilvægt að neyta þeirra reglulega, hvort sem það er gert í gegnum neyslu á fiski eða með því að taka inn bætiefni með Omega-3.

Ef þér fannst þessi grein áhugaverð, deildu henni þá endilega með öðrum.

Heimildir: Greinar á vefsíðum www.draxe.com - www.healthline.com og www.laeknabladid.is 

Guðrún segir að Omega-3 sé okkur nauðsynlegt.
Guðrún segir að Omega-3 sé okkur nauðsynlegt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál