Hamingjusamari eftir að hún fitnaði

Fyrirsætan La'Tecia Thomas er ánægð með sjálfa sig eins og …
Fyrirsætan La'Tecia Thomas er ánægð með sjálfa sig eins og hún er. skjáskot/Instagram

Hin ástralska La'Tecia Thomas er hamingjusamari í dag í stærð 16 en hún var þegar hún var í stærð sex. Áður en hún bætti á sig keppi hún í bíkiníkeppnum og var ónægð með sjálfa sig. Í dag hefur hún lært að elska sjálfa sig og starfar sem fyrirsæta. 

Áður en hún bætti á sig æfði hún í þrjá tíma á dag og var á mjög stífu mataræði samkvæmt Independent. Thomas segist ennþá hreyfa sig en hefur ekki áhyggjur af vigtinni. 

Thomas viðurkennir að hún fái mikið af neikvæðum athugasemdum á Instagram og hún verði fyrir fitufordómum daglega. Hún segir að athugasemdirnar hafi haft áhrif á hana til að byrja með en í dag eru það yngri fylgjendur hennar sem hjálpa henni. Hún segir að stelpur allt frá 14 ára aldri fylgi sér og hún finnur fyrir mikilli jákvæðni. 

Þrátt fyrir að hafa verið óhamingjusöm þegar hún var grennri telur hún að hún yrði hamingjusöm ef hún myndi grennast þar sem hún hefur lært að elska sjálfa sig. Eftir að hún breytti viðhorfi sínu til lífsins hatar hún ekki lengur ákveðna líkamshluta og er hætt að bera sig saman við aðrar konur. Hún leggur áherslu á að geðheilsan sé alveg jafn mikilvæg og líkamleg heilsa. 

Líkami Thomas hefur breyst en einnig viðhorf hennar til lífsins.
Líkami Thomas hefur breyst en einnig viðhorf hennar til lífsins. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál