Topp 10 heilsutrendin 2018

mbl.is/ThinkstockPhotos

„Óhætt er að fullyrða að Whole Foods hafi drottnað yfir heilsuvörumarkaðnum undanfarin ár. Vart eiga áhrifin eftir að dvína eftir aðkomu Amazon sem nýlega keypti keðjuna. Það er því ástæða til að staldra við þegar Whole Foods leggur línurnar fyrir heilsuvörumarkaðinn árið 2018. Það er alltaf gaman að koma í Whole Foods, sérstaklega í stóru búðirnar og sækja þangað innblástur. Þeir eru með puttann á púlsinum. Hér er hitamælir Whole Foods sem nýlega setti fram topp 10 lista yfir heitustu fæðuheilsutrendin árið 2018, sem fóru vissulega í gegnum íslenska síu,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir, eigandi Systrasamlagsins, í sínum nýjasta pistli: 

mbl.is/ThinkstockPhotos

Blómabragð 

Sælkerar og helstu matreiðslustjörnur heims hafa lengi dýrkað og dáð matblóm. Ekki síst vegna þess hve gaman er að skreyta diskinn með fallegum blómum. En nú má segja að blómabragðið sé að springa út. Heilu blómin og krónublöðin sem prýtt hafa fallega diska eru líka að verða að bragði í drykkjum og snakki. Þetta er trend númer eitt árið 2018 að mati heilsukeðjunnar Whole Foods, sem segir blómin færa okkur náttúrulegt sætt bragð ekki síður en ilm. Nú munum við fara að sjá alls konar lækningajurta-latté-a og lavender-latte kemur sterkur inn. Rósabragðið verður allsráðandi en þá þarf að fanga hárfínt bragðið. Dökkbleikur hibiscus-drykkur verður bæði heitur og kaldur og ylliblómin verða á hvers manns vörum í koteilum og freyðandi drykkjum. Það er gaman að geta þess að við höfum tekið upp marga af þessum bráðskemmtilegu blómasiðum í Systrasamlaginu.

mbl.is/ThinkstockPhotos

Ofurduft

Og flestir sem héldu að ofurduftið væru á útleið? Ónei, því fer fjarri enda frábær leið til að flytja góða næringu á milli staða og landa. Það á ekki síst við um allar mögnuðu lækningajurtirnar, sem eins og lifna við í höndum þeirra sem kunna með þær að fara. Allskonar latté-ar með óvæntu bragði (túrmerik, matcha, kakó úr regnskógunum) munu ná nýjum hæðum. Ayurvedakryddin/lækningajurtinar (heitu meltingarkryddin) verða aldrei vinsælli og líka kakóið (þetta hreina frá Gvatemala sem á viðkomu í Systrasamlaginu). Þetta þýðir líka að alls konar ofurduft eins og spírúlína, grænkál og rætur mun prýða góða þeytinga sem aldrei fyrr. Semsé þeytingurinn er ennþá á uppleið enda frábær leið til að næra sig vel og á dýptina. Svo er auðvitað vandaða prótínduftið komið langt út fyrir líkamsræktarstöðvarnar.

mbl.is/ThinkstockPhotos

Sveppir sem búa yfir lækningamætti

Það er ekkert að draga úr vinsældum sveppa, segja Whole Foods-sérfræðingarnir með viskuna frá Amazon í farteskinu. Reishi, chaga, cordyceps og lion's mane munu standa upp úr. Margir drykkir árið 2018 munu innihalda sveppakraft. Líka kaffi, þeytingar og te. Sveppakraftur sem geymir þetta sterka jarðarbragð smellpassar með kakói, súkkulaði og kaffi (og færir okkur jarðtengingu). En við munum líka mæta þeim í ýmsum húðsnyrtivörum enda húðin auðvitað magnað frásogslíffæri.

Matargerð Mið-Austurlanda

Við sem fylgjumst vel með þróun í matargerð höfum séð Ottolenghi fara með himinskautum undanfarin ár og boða nýja tíma í matargerð. Hann er nýr Jamie Oliver. Árið 2018 verður meginstraumurinn miðausturlenskur að mati Whole Foods. Hummus, pítur og falafel þekkjum við mætavel en nú er matargeirinn að fara ennþá dýpra og leitar fanga í persneskum hefðum, í Marokkó (appelsínublómaseyði), Sýrlandi, Líbanon og ekki síst Ísrael. Þá sjáum við mikið af harissu, endalaust af kardimommum, za’tar, ásamt shakshuka, grilluðum halloumi og helling af lambi. Líka granatepli, eggaldin, gúrku, steinselju, mintu, alls kyns tómatmauk og þurrkaða ávexti. Allt verður þetta ennþá meira áberandi árið 2018.

Gagnsæis ...

… verður ennþá meira krafist á næsta ári við merkingu og innihald matvæla. Nokkrir veitingahúsaeigendur og ekki síst neytendur vilja vita hvaðan maturinn kemur og úr hvaða uppsprettu. Neytendur er líka farnir að fatta munstur þeirra sem segja eitt og gera annað í heilsubransanum. Það gæti orðið hávaði á næsta ári. Óerfðabreytt matvæli verða efst á bannlista í heilsugeiranun en í humátt á eftir koma siðleg viðskipti, siðferðisleg ábyrgð, velferð dýra og ekki síst hvaða næring er á bak við hitaeiningarnar. Whole Foods ætlar sjálft að krefjast ennþá betri merkinga á matvælum á næsta ári. Það veit á gott.

Hátækninni fleygir fram

Grænmetisfæðan og -diskurinn mun áfram ráða ferðinni en matartæknin hefur hafið innreið sína. Heldur betur. Þannig styttist óðum í að hægt verði að fá „blæðandi“ veganborgara og túnfisksushi búið til úr tómötum (ég veit ekki hvað mér finnst um það). Þessi tækni býður líka upp á alls konar skemmtilega jurtamjólk og jógúrt, ís, brioche, crème brûlée og fleira sem verður svo gómsætt að þú munt ekki finna muninn á því hvort það er vegan eða ekki. Hér er þó um að ræða matvæli úr hnetum, perum, banönum og pilihnetum og fleiri jurtauppsprettum.

Útblásið og poppað snakk

Marrandi snakk verður sjálfsagt alltaf í miklu uppáhaldi. En aftur; tækninni fleygir fram og nú hefur orðið bylting í útblásnu, poppuðu, þurrkuðu og stökku. Hér erum við að tala um þang, poppuð hrísgrjón, kínóna og pasta og alls konar. Gömlu góðu „frönsku“ kartöflurnar verða úr ennþá fjölbreyttari hráefni en áður, m.a. jicama, rósakáli, nípum og öðru (og vonandi koma rófurnar líka sterkar inn).

mbl.is/ThinkstockPhotos

Takó losnar úr skelinni

Takóið er ekki endilega best í maískökunni, fullyrðir Whole Foods. Enda hver þarf svosem maísköku þegar skelin gæti verið úr þangi og bragðast eins, ef ekki betur? En þetta snýst svosem ekki endilega um það. Matur frá Mexíkó hefur aldrei verið jafn vinsæll. Undir skelinni er heill heimur af bragðmiklum dýrgripum, líka morgunverðum og eftirréttum, með og án korna. Þarna er fjársjóður fyrir þá sem aðhyllast Paleo og alla sælkeranna.

Frá rót að stöngli

Í kjötiðnaðinum er talað um frá nefi að hala. Í grænmetisiðnaðinum frá rót að stöngli sem snýst um að fara vel með hráefnið og nýta það allt. Það þýðir að nota beri allt af grænmetinu og ávöxtunum, það sem er vanalega ekki borðað. Réttir eins og pikklað vatnsmelónuhýði, pestó úr laufum rauðrófa og spergilkálsstönglar eru að koma neytendum á óvænt og skemmtilega næringarríkt bragð.

Skál í bubblum 

LaCroix gæti hafa rutt brautina. En nú er komið að því drykkir sem eru náttúrlega freyðandi (bannað að tala um gos) er á hraðri uppleið. Þessir drykkir eru ekkert líkir sykruðum gosdrykkjum. Kaldbruggað, náttúruleg vatn, drykkir drukknir úr jávæðum kristalsflöskum. Það er þetta hreina og tæra. Heilsugos er kannski heitið og bragðið er óvænt og skemmtilegt. Mokteilar halda áfram að freyða og gefa og náttúrlegir gosdrykkir, eins og t.d. LemonAid með læmi frá Mexíkó, blóðappelsínum frá Ítalíu og/eða ástríðualdini frá Srí Lanka, eiga sviðið. Líklega verður ekki aftur snúið. Sykraðir innantómir gosdrykkir eru á hröðu undanhaldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál