Brosti til baka þegar fólkið hló að henni

Jacqueline Adan lætur ekki annað fólk hafa áhrif á sig.
Jacqueline Adan lætur ekki annað fólk hafa áhrif á sig. skjáskot/Instagram

Jacqueline Adan varð fyrir því leiðinlega atviki þegar hún loksins klæddist sundfötum eftir að hafa lést mikið að það var hlegið að henni. Adan sagði á Instagram-reikningi sínum að hún hafi ákveðið að láta ekki hláturinn á sig fá, brosti til baka og fór í sundlaugina. 

„Jú, ég er enn með mikið af lausri húð, ég finn enn stundum fyrir óöryggi og jú stundum er gert grín að mér. Til að vera hreinskilin, jú það truflaði mig en ég ætlaði ekki að láta fólk eins og þetta fólk hafa áhrif á mig lengur! Ég ætla ekki að láta það sem annað fólk hugsar hafa áhrif á það hvernig ég lifi lífinu,“ skrifaði Adan og hvetur fólk til þess að elska líkama sinn. 

Adan er búin að ná stórkostlegum árangri en hún er búin að missa yfir 150 kíló frá því að hún var 230 kíló og festist í hliði í Disneylandi. „Ég missti ekki 158 kíló á einni nóttu, en til þess að geta það þurfti ég að hafa trú á sjálfri mér. Ég þurfti að vera sterkari en allar mínar afsakanir. Andaðu djúpt. Taktu eitt skref, einn dag í einu og gerðu það bara. Ég veit þú getur það,“ skrifaði Adan á Instagram en hún er dugleg að hvetja aðra til dáða með því að segja frá sjálfri sér. 

Jacqueline Adan hefur grennst mikið.
Jacqueline Adan hefur grennst mikið. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál