Ein óholl máltíð skemmir ekki árangur

Heilsubloggarinn Anna Victoria.
Heilsubloggarinn Anna Victoria. Skjáskot/Instagram

Ef þú ert að vinna hörðum höndum að því að koma þér í form mun einn dagur af óhollustu ekki skemma framfarir þínar samkvæmt heilsubloggaranum Önnu Victoriu. 

Anna birti myndir af sér á Instagram-síðu sinni þar sem að hún sýnir fylgjendum sínum að eftir einn heilan dag af óhollustu breyttist líkami hennar ekki neitt daginn eftir.   

Fyrstu myndina tók Anna áður en hún fór í Disneyland, þar sem hún borðaði heilan helling af sykruðu góðgæti. Næstu myndina tók hún þegar hún kom heim frá skemmtigarðinum en þá var magi hennar frekar þrútinn eftir daginn. Seinustu myndina tók hún síðan daginn eftir þar sem sést greinilega að hún lítur ekkert öðruvísi út en daginn áður. 

„Einn dagur af óhollustu mun ekki láta þig fitna alveg eins og einn dagur af hollustu mun ekki láta þig grennast,“ skrifar hún undir myndir.

Anna lagði einnig áherslu á hversu mikilvægt það er að láta ekki einn dag af óhollustu henda þér af sporinu. Hún hvatti fylgjendur sína til þess að fá ekki samviskubit ef þeir fá sér smá góðgæti eða halda að þau hafi skemmt fyrir sjálfum sér. 

„Þú getur farið út að borða með fjölskyldu og vinum án þess að láta það skemma þig andlega. Við verðum að skilja að matur hefur tilgang: að gefa líkamanum næringu og orku.“

A post shared by Anna Victoria (@annavictoria) on Aug 15, 2017 at 1:14pm PDT



Hér tekur hún mynd af sér eftir einn dag af …
Hér tekur hún mynd af sér eftir einn dag af óhollustu og segist ekki skammast sín neitt fyrir útblásin maga. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál