Einkaþjálfarinn Madalin Giorgetta birti mynd af sér nýlega þar sem hún sýnir hvernig líkami hennar er í raun og veru langflesta klukkutíma sólarhringsins.
„Ég birti þessa mynd fyrir þær stelpur sem spyrja mig hvort ég sé alltaf með flatan maga. Nei, nei ég er það ekki,“ segir Giorgotta og segir að maginn sé flatur um 10 prósent af tíma dagsins.
Hún tekur síðan jákvætt í það þegar ein kona sagðist ætla hætta að fylgja henni á Instagram. „Ég fylgi aðeins konum sem láta mér líða vel,“ segir Giorgotti og hvetur konur til þess að umkringja sig konum sem veita þeim innblástur og hvatningu.