Svona heldur J-Lo sér í formi

Jennifer Lopez er alltaf í hörkuformi.
Jennifer Lopez er alltaf í hörkuformi. mbl.is/AFP

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez hefur líklega aldrei verið í betra formi þrátt fyrir að eiga aðeins tvö ár í fimmtugt. Söngkonan er þekkt fyrir að dansa á fullu á tónleikum sínum. Women's Health tók saman nokkur trix sem Lopez hefur gefið upp. Lopez hefur æft með stjörnuþjálfurunum Tracy Anderson og Gunnar Peterson auk þess að hún dansar mjög mikið. 

Aldrei að sleppa æfingu

Lopez sagði í viðtali að hún sleppi afar sjaldan æfingu. Hún segir að stundum þegar hún vinnur langt fram á kvöld nenni hún ekki á æfingu. Hún ákveður þó að fara enda taki þetta bara klukkutíma. 

Engin fíflalæti

Lopez segir að það sé vinna að halda sér í formi. „Þú verður að æfa, þú verður að passa hvað þú borðar,“ sagði hún. 

Jennifer Lopez þarf að vera í góðu formi til þess …
Jennifer Lopez þarf að vera í góðu formi til þess að koma fram á tónleikum. mbl.is/AFP

Vertu stolt af líkama þínum

Jennifer Lopez reynir ekki að vera einhver önnur en hún er. „Ég held að hugmyndin um að hafa ávalar línur, að vera aðeins stærri en venjulegt er eða minni en venjulegt er, allt þetta er fínt. Svo lengi sem það er heilbrigt. Ég fagna því hver ég er. Mér finnst ég kynþokkafull, finnst ég ungleg, finnst ég stundum falleg,“ sagði Jennifer Lopez. 

Mataræðið skiptir máli

Lopez er á ströngu mataræði. Tracy Anderson sem hefur þjálfað söngkonuna sagði eitt sinn að Lopez borðaði bara lífrænan mat auk þess að allt væri úthugsað hvað varðar jafnvægi á hágæðaprótíni og næringarríkum mat. Allt er ferskt og engar unnar matvörur. Anderson hefur líka gefið það upp að Lopez drekki hvorki kaffi né áfengi. 

Þolinmæði

Þrátt fyrir að Lopez sé vön að vera í góðu formi og taka vel á því þá er hún meðvituð um að sýna líkama sínum þolinmæði. Hún segir að hún hafi hugsað þegar hún varð ólétt af tvíburum að hún myndi aldrei komast í sama formið en það tók hana ár að komast í gott form aftur. Margar konur í Hollywood reyna eftir bestu getu að komast í sitt fyrra form á sem stystum tíma. 

Hún dansar

Jennifer Lopez dansar mikið á tónleikum sínum og gerir það líka til að halda sér í formi. Hún segir jafnframt að þegar sjálfstraustið er ekki upp á sitt besta þá dansi hún. 

Jennifer Lopez.
Jennifer Lopez. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál