10 leiðir sem styðja við þyngdartap

Sara Barðdal einkaþjálfari og heilsumarkþjálfari.
Sara Barðdal einkaþjálfari og heilsumarkþjálfari.

Sara Barðdal einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi skrifaði pistil á heimasíðu sína um það hvernig mætti auka fitubrennslu og þar með stuðla að þyngdartapi. Ráðin frá Söru eru fjölbreytt og hugsanlega koma einhver á óvart.  

1. Passaðu upp á blóðsykurinn

Þegar við neytum mikils af viðbættum sykri og einföldum kolvetnum rís blóðsykurinn hratt hjá okkur og við fáum skjóta orku. Brisið byrjar að framleiða insúlín, sem hjálpar líkamanum að brjóta niður sykurinn í glúkósa og flytja hann inn í frumur okkar sem orku.

Of miklar sveiflur í blóðsykri geta sett okkur inn í vítahring þar sem við leitum í skjóta orku og dettum síðan niður í slen og þreytu þegar hann lækkar. Ekki nóg með það að við verðum þreytt og orkulaus heldur leiðir of mikið magn af glúkósa í líkamanum til fitusöfnunar.

Okkur líður best þegar blóðsykurinn er í jafnvægi og við borðum fæðu sem breytist ekki of hratt í glúkósa í líkamanum, þannig styðjum við við efnaskiptin í líkama okkar og fitubrennslu.

Til að losna við of miklar sveiflur í blóðsykri þarf að neyta fæðu sem er með lágan sykurstuðul ásamt því að blanda þeim saman á réttan hátt, þannig að fæðu sem er með hærri sykurstuðul er neytt með þeirri sem er lægri.

Kjörið tækifæri til þess að neyta fæðu sem er með hærri sykurstuðul væri beint eftir æfingar, en þá eru birgðirnar í líkamanum lágar og mun þá líkaminn leitast við að fylla á þær í stað þess að nota sem fituforða.

2. Borðaðu regnbogann og innbyrtu meiri vökva!

Borðaðu litríkan mat á hverjum degi, grænmeti og ávextir myndu falla undir þann flokk, en það er stútfullt af steinefnum, vítamínum, trefjum, ensímum og andoxunarefnum sem styðja við alla ferla líkamans. Það styður einnig við hreinsun líkamans, skjaldkirtilinn, hjálpar gegn matarlöngunum og svo margt margt fleira.

Með því að auka inntöku á þessum fæðutegundum ertu einnig að auka vökvainntöku því ávextir og grænmeti eru full af vatni. En vatn eykur einnig brennsluna þína, og með því að þamba 500 ml af vatni í einu nærðu að auka hana um 30% í 30-40 mín. eftir á. 

Þannig styður þú við brennsluna og heldur líkamanum vökvuðum.

3. Fáðu þér grænt te

Grænt te inniheldur efnið ECGC sem styður við fitubrennslu. Fáðu þér því bolla af grænu tei í staðinn fyrir kaffið. Ein rannsókn sýndi að fólk sem drakk 3-5 bolla af grænu te-i á dag ásamt hreyfingu missti 4,6% af líkamsfitunni yfir 12 vikna tímabil.

Grænt te er sagt sérlega hollt.
Grænt te er sagt sérlega hollt. mbl.is

4. Slepptu áfenginu!

Áfengi inniheldur ekki bara mikið af kaloríum heldur hafa rannsóknir einnig sýnt að neysla áfengis fyrir máltíð eykur líkurnar á að líkaminn noti kaloríurnar frá máltíðinni sjálfri sem fituforða.

Einnig eru líkurnar mun meiri á að orkuleysi og þynnka hafi þau áhrif að skyndibiti og sukk fylgi daginn eftir þannig ef þú vilt ná að auka brennsluna þína og fá árangur fyrr þá ættir þú að forðast áfengi.

5. Taktu lýsi eða omega 3 töflur

Omega 3 er nauðsynlegt fyrir heilsuna, vertu því viss um að taka inn lýsi daglega eða Omega 3-töflur (fljótandi lýsi er hins vegar mun betra þar sem það inniheldur hærra hlutfall af omega 3 sem líkaminn getur tekið betur upp).

Omega 3 er ekki bara lífsnauðsynlegt fyrir líkamann heldur vinnur það líka gegn hjarta- og æðasjúkdómum, minnkar bólgur í líkamanum, getur hjálpað gegn þunglyndi, er gott fyrir heilann, hefur sýnt að það geti hjálpað gegn ADHD-einkennum í börnum og hægt á eða komið í veg fyrir Alzheimers, ásamt því að auka brennsluna samkvæmt rannsókn sem birtist í American Journal of Clinic Nutrition. 

6. Kryddaðu upp lífið!

Bættu við sterku kryddi í matinn þinn, efnið capsaicin sem finnst meðal annars í jalapenjó og cayenne-pipar eykur brennsluna tímabundið með því að leysa úr læðingi hormón eins og adrenalín, sem hjálpar þér að brenna kaloríur samkvæmt rannsókn sem var gerð í Laval-háskóla í Kanada

7. Slakaðu á!

Streita er dauði fyrir fitubrennsluna þína! Þú getur borðað þig í offitu, en þú getur líka stressað þig þangað.

Þegar þú ert sístressuð eykur þú hormónið cortisol í líkamanum, en það getur haft slæm áhrif á þig á margan hátt. Það getur brotið niður vöðva og haft bein áhrif á fitusöfnun í líkamanum (sérstaklega í kringum miðjuna) ásamt því að hafa neikvæð áhrif á hormón sem hjálpa við fitubrennslu.

Minnkaðu því stressið í lífinu þínu, taktu góða slökun, iðkaðu jóga eða teygjuæfingar og mundu að stress er aðeins viðbragð þitt við ytri aðstæðum, ekki aðstæðurnar sjálfar.

8. Stattu upp!

Hefurðu heyrt að það að sitja of lengi er talið álíka slæmt og reykingar?  Ekki hefur það aðeins slæm áhrif á mjóbakið, vöðvarýrnun og offitu, heldur eykur það líka líkurnar á hjartasjúkdómum og er hraðlestarmiði niður í moldina.

Þannig að stattu upp og hreyfðu þig, ef þú situr í vinnunni, vertu þá dugleg að standa upp og teygja úr þér, ef þú hefur aðgang að borði sem þú getur hækkað og staðið við, enn þá betra.

9. Æfðu BETUR!

Langtímaþolæfingar eru ekki málið til þess að auka brennsluna þína. Nýjustu rannsóknir sýna að lotuþjálfun (HiiT) sé hagkvæmasta leiðin til þess að kýla upp brennsluna þína. Ekki aðeins brennir þú fleiri kaloríum meðan á æfingunni stendur heldur er eftirbruninn mun meiri næstu 24 klukkustundirnar. Einnig hefur komið fram að ekki tapast jafnmikill vöðvamassi og þegar þú stundar langar þolæfingar, þannig að þú heldur þínum vöðvum á sama tíma og þú tryggir að þyngdartapið komi frá fitubirgðunum.Allir vinna!

Lotuþjálfun er góð leið til þess að brenna fitu.
Lotuþjálfun er góð leið til þess að brenna fitu. mbl.is/Thinkstockphotos

10. Hlæðu meira!

Vá en góðar fréttir! Það að hlæja getur í alvöru aukið brennsluna þína.

Rannsókn sem var gerð af International Journal of Obesity sýndi að það að hlæja í 10-15 mínútur á dag geti aukið orkunotkun og hjartarslátt um 10-20%. Sem gerir um 2-10 kcal, ókei þú ert kannski ekki að fara að hlæja þig í form, en þetta er skemmtileg staðreynd.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál