Allir geta verið til fyrirmyndar

Marín Magnúsdóttir, Sigþrúður Ármann og Karitas Diðriksdóttir eru í forsvari …
Marín Magnúsdóttir, Sigþrúður Ármann og Karitas Diðriksdóttir eru í forsvari átaksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hvatningarátakið Takk fyrir að vera til fyrirmyndar fer af stað í dag og þá getur fólk sent sérútbúin þakkarbréf eða -kort hverjum sem þeim finnst eiga slíkt skilið fyrir að vera til fyrirmyndar. Einnig er hægt að senda rafræna kveðju, á mörgum tungumálum, eða taka mynd af sér við takk-vegg og deila á samfélagsmiðlum. Sigþrúður, Marín og Karítas eru forsvarsmenn verkefnisins.

„Við viljum að fólk líti sér nær og velti fyrir sér hvað því finnst vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt, bæði stórt og smátt,“ segja þær Sigþrúður Ármann, Marín Magnúsdóttir og Karítas Diðriksdóttir, en þær eru í forsvari fyrir hvatningarátakið Takk fyrir að vera til fyrirmyndar, sem fer af stað í dag og er tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni. Átakið gengur út á að hvetja landsmenn til að senda handskrifaða eða rafræna kveðju til fjölskyldu, vina, vinnustaða, félagasamtaka eða annarra sem bréfritarar vilja þakka fyrir að vera til fyrirmyndar á einn eða annan hátt.

„Þörfin fyrir svona átak er mikil núna. Þörfin var líka mikil fyrir tíu árum, skömmu eftir hrun, en þá vorum við með samsvarandi átak sem gekk mjög vel. Við viljum endurtaka leikinn í tilefni af því að hinn 29. júní verða 40 ár liðin frá því að Íslendingar stigu það framfaraskref á heimsmælikvarða að vera fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum. Þá vorum við heldur betur til fyrirmyndar sem þjóð. Við viljum halda því á lofti og nýta þessi tímamót til að hugsa hvað það skiptir miklu máli að vera til fyrirmyndar, rétt eins og Vigdís var og er sterk fyrirmynd. Við viljum líka minna á að allir geta verið til fyrirmyndar, fólk þarf ekki að vera þjóðhöfðingjar til þess. Þessi bréf eru hugsuð til að senda fjölskyldu, vinum, samstarfsfólki eða hverjum sem fólki dettur í hug,“

Gaman að finna takk-vegg

Staðlað bréf eða kort sem á stendur Takk fyrir að vera til fyrirmyndar fylgir með Morgunblaðinu í dag, ætlað fólki til að fylla út og senda. Kortin er líka hægt að nálgast á pósthúsum landsins, í útibúum Landsbankans og verslunum Nettó um allt land.

„Við viljum endilega að fólk skrifi fleiri en eitt kort, helst sem flest, og þau má setja ófrímerkt í póst innanlands. Einnig er hægt að senda rafræna kveðju á formi sem nálgast má á vefsíðunni tilfyrirmyndar.is. Við segjum stoltar frá því að hægt er að nálgast kortið á nokkrum tungumálum á heimasíðunni, þannig sameinum við fólk úr mismunandi áttum og leggjum áherslu á að við erum öll saman í þessu verkefni. Vigdís hefur alla tíð vakið athygli á mikilvægi tungumála fyrir menningarlega fjölbreytni og jákvæð samskipti þjóða. Við hvetjum fólk líka til að senda kort úr landi, því það vakti jú athygli um allan heim þegar Vigdís var kosin forseti. Við Íslendingar erum númer eitt í heiminum í jafnréttismálum og erum til fyrirmyndar á því sviði, við viljum líka vekja athygli á því um víða veröld.“

Ein leiðin enn til að vekja athygli á hvatningarátakinu eru veggir sem málaðir verða á næstu dögum í lit átaksins með áletruninni takk. Þessa veggi verður að finna víða um land og þar getur fólk tekið myndir af sér og deilt á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #tilfyrirmyndar.

„Við gerum ráð fyrir að Íslendingar ferðist mikið innanlands í sumar og þá verður gaman að finna takk-vegg. Við hvetjum fólk til að taka myndir af sér við þessa veggi á ferðum sínum um landið, taka sjálfu, hvort sem það er fjölskyldan saman, vinir eða vinnuhópar, og pósta á samfélagsmiðlana okkar.“

mbl.is/Kristinn Magnússon

Margir geyma kortin enn

Að segja einhverjum með þessum hætti að hann sé til fyrirmyndar er gefandi bæði fyrir sendanda og viðtakanda.

„Margir sem fengu slík kort fyrir tíu árum geyma þau enn. Okkur finnst mikilvægt að bjóða upp á þetta í prentuðu formi, það er gaman að kenna yngri kynslóðinni að handskrifa bréf og senda,“ segja þær vinkonur og taka fram að í nærumhverfi allra séu alltaf einhverjir sem eru til fyrirmyndar.

„Til dæmis er tilvalið að vinnufélagar skilji eftir takk-kort á borði hjá þeim vinnufélögum sem þeim finnst gott að starfa með. Það er svo gaman að setja á sig þessi gleraugu og horfa í kringum sig með það í huga hverjir eru til fyrirmyndar, þá sjáum við víða svo margt gott. Við erum kannski ekkert að hugsa mikið um það í hversdeginum. Kortin er auðvitað líka hægt að láta bláókunnuga manneskju hafa, til dæmis starfsmann í verslun sem veitir þér góða þjónustu eða brosir og tekur vel á móti þér. Nú eða heimafyrir, skilja kannski eftir takk-kort á koddanum hjá makanum eða börnunum.“

Of seint í minningargrein

Þær vinkonurnar minna á að við sjáum of oft í minningargreinum að fólk sér eftir að hafa ekki sagt takk og hrósað sínum nánustu eða vinum, sem er góð áminning um að geyma það ekki.

„Við megum vera dugleg við að láta vita af því sem vel er gert. Auðvitað langar alla til að vera til fyrirmyndar, svo vonandi verður þetta átak hvatning fyrir fólk til að standa sig vel. Allt sem við gerum eigum við að reyna að gera vel,“ segja þær og taka fram að Vigdísi þyki vænt um verkefnið og þær séu þakklátar fyrir velviljann hjá öllum þeim fyrirtækjum sem þær hafa leitað til með stuðning, án hans væri þetta ekki mögulegt.

„Okkur finnst frábært að fara af stað með þetta í dag, á þjóðhátíðardeginum. Við hvetjum alla til að taka myndir af sér við takk-veggina í sumar og senda bréfin eða kortin sem víðast. Okkur langar að þetta lifi út júlímánuð, því hinn 1. ágúst verða 40 ár frá því að Vigdís var sett inn í embættið. Þá getum við verið með samantekt og glaðst yfir þátttökunni sem við efumst ekki um að verður frábær.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál