Anna Jia: Hvernig er að stunda háskólanám í Kína?

Anna Jia, rekstrarfræðingur og fyrirsæta, hefur reynslu af því að vera í námi í Kína. Nú stefnir hún á nám í Le Cordon Bleu í Bretlandi, þar sem hún ætlar að samtvinna ástríðuna og nám. Hún sér gríðarlegt tækifæri á að gera veitingahúsageirann sjálfbærari og finna leiðir til þess að minnka t.d. matarsóun og plastnotkun. 

AnnaJia útskrifaðist af náttúrufræðibraut frá Menntaskólanum í Reykjavík og fór síðan beint eftir það á skólastyrk til Peking-háskóla. Eftir að hafa lært þar um árabil lagði hún leið sína aftur til Íslands þar sem hún lagði stund á rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík.

-Hvernig kom til að þú lagðir stund á nám í Kína?

„Ég lærði kínversku og kínversk fræði þar í ár. Faðir minn er frá Kína og hef ég alltaf talað kínversku við hann. Ég hafði hins vegar aldrei lært að lesa og skrifa á kínversku. Mig langaði að ná tökum á því og að kynnast Kína, þar sem rætur mínar liggja þangað.“

-Hvað geta Íslendingar lært áhugavert af Kínverjum?

„Mjög margt námslega, enda eru Kínverjar með bestu námsmönnum heims og ekki að ástæðulausu. Það er erfitt að lýsa því hvernig andrúmsloftið í kennslustofunum er frábrugðið því sem við erum vön hér heima. Til dæmis fer kennslan að miklu meira leyti fram í einhvers konar samtali kennarans við hvern nemanda bekkjarins, svo að allir taka virkan þátt og mikil umræða á sér stað. Það er einnig algengt að eftir langa setu standi allir upp og geri teygjur saman og nuddi til þess að koma blóðflæðinu aftur af stað og auka vellíðan. Mér finnst Kínverjar leggja mikla áherslu á jafnvægi milli vellíðunar, bæði líkamlegrar og andlegrar, og verkefna, bæði í vinnu og skóla, hvort sem það er að setja saman máltíðir á sem næringarríkastan hátt eða passa að fara og labba einn hring í hádegishléinu sínu.“

-Hvernig er að vera í kínverskum háskóla?

„Það var alveg dásamlegt. Maður gat byrjað alla morgna á Thai Chi úti, en það er mjög líkt því að byrja hvern einn og einasta dag á jóga. Síðan fór maður í mötuneytið að fá sér morgunmat og svo tóku við tímar yfir daginn. Eftir skóla fór maður ýmist að hitta vini eða að stunda einhver áhugamál en það voru hópar fyrir um það bil allt sem hægt er að láta detta sér í hug. Á skólavistinni var einnig allt sem til þurfti: kaffihús, veitingahús, bíó, líkamsrækt, tennis, frjálsíþróttaaðstaða og fótboltavellir. Garðar til að sitja í svo að maður þurfti varla að fara út fyrir skólalóðina. Síðan var líka ómetanlegt að eignast vini hvaðan af úr heiminum þar sem það voru nemendur á heimavistinni með mér frá öllum heimshornum og frá mismunandi menningarheimum.“

-Hvert stefnir þú?

„Ég stefni næst til London, en ég er að flytja þangað í haust til þess að búa með unnustanum og fara í frekara nám. Ég hef ákveðið að fara í Le Cordon Bleu í Culinary Management og patisseríe-nám. En ég hef alltaf haft mikinn áhuga og ástríðu fyrir því að skapa í eldhúsinu og langaði að finna leið til þess að samtvinna ástríðuna og námið. Síðan er auðvitað risastórt tækifæri til þess að finna leiðir til þess að gera veitingahúsageirann sjálfbærari og finna leiðir til þess að minnka t.d. matarsóun og plastnotkun.“

-Áttu þér einhverja ósk í umhverfismálum sem þú vonar að rætist á næstunni?

„Já, ég vonast til þess að sjá fólk fara að lifa eftir R-unum þremur sem er: „Reduce-Reuse-Recycle.“ Að minnka óþarfa neyslu, nýta hlutina aftur og endurvinna. Ég t.d. áttaði mig ekki á því að auðvitað er ekki endanleg lausn á umhverfismálum bara að endurvinna heldur frekar að endurhugsa aðeins neysluvenjurnar sínar. Það er svo margt sem við getum gert frá degi til dags sem þarf ekki að vera flókið, eins og að kolefnisjafna ferðalögin sín yfir sumrin (kolvidur.is), velja frekar kjúkling en nautakjöt (eða jafnvel sleppa kjöti nokkra daga í viku) og reyna að vera meðvitaður um matarsóun og plast.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál