Hryggjarstykkið í uppbyggingu innviða

Eyrún Arnarsdóttir viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins.
Eyrún Arnarsdóttir viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins.

Eyrún Arnarsdóttir lögfræðingur hefur starfað hjá Samtökum iðnaðarins frá því í desember 2016. Hún starfaði þar fyrst sem lögfræðingur en nú starfar hún sem viðskiptastjóri á mannvirkjasviði samtakanna. Hún segir m.a. að jarðvinnuverktaka sé að mörgu leyti hryggjarstykkið í uppbyggingu innviða, til dæmis þegar kemur að vegagerð. 

Í hlutverki viðskiptastjóra vinnur Eyrún náið með fjölmörgum aðildarfélögum og starfsgreinahópum, líkt og Félagi vinnuvélaeigenda, Félagi ráðgjafarverkfræðinga, Mannvirki – félagi verktaka og Samtökum arkitektastofa.

Hvernig er að vinna á mannvirkjasviði?

„Það er mjög áhugavert og skemmtilegt að starfa í þágu byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar. Ég er ný í þessu starfi og er sífellt að læra eitthvað nýtt en starfið er mjög fjölbreytt og ég vinn með ólíkum aðildarfélögum innan samtakanna. Óstöðugt starfsumhverfi er einkennandi fyrir greinina en sveiflurnar eru mun meiri en almennt gengur og gerist í hagkerfinu. Það er stórt hagsmunamál að ná stöðugri markaði. Verkefnin eru annars fjölmörg og tækifærin sömuleiðis.“

Þú fórst á ráðstefnu fyrir skömmu, hverju tengdist hún?

„Ég fór ásamt formanni Félags vinnuvélaeigenda á fund í Helsinki þar sem fulltrúar systursamtaka Félags vinnuvélaeigenda af Norðurlöndunum hittust og ræddu stöðu greinarinnar í hverju landi. Þetta er árlegur fundur og að þessu sinni var aðalumfjöllunarefnið nýliðun í greininni. Fulltrúar Norðurlandanna höfðu sömu sögu að segja í þessum efnum en nýliðun hefur verið allt of lítil undanfarin ár. Þetta er málefni sem Félag vinnuvélaeigenda hefur nú sett í forgang. Hér á landi skortir t.d. tengingu inn í menntakerfið en sænsku systursamtökin okkar hafa átt samstarf við skólana um verklegt nám þar sem kennt er að stjórna vinnuvélum. Norðmenn eru einnig með samstarf í tengslum við nemendur sem hætta í námi og fyrirtækin taka á móti þeim.“

Uppsöfnuð viðhaldsþörf mikil

Hvaða tækifæri eru tengd þessum iðnaði í landinu?

„Það er gífurleg uppsöfnuð þörf þegar kemur að innviðaframkvæmdum í landinu. Jarðvinnuverktaka er að mörgu leyti hryggjarstykkið í uppbyggingu innviða, t.d. þegar kemur að vegagerð. Samtök iðnaðarins og Félag ráðgjafarverkfræðinga gáfu út skýrslu um ástand og framtíðarhorfur innviða á Íslandi fyrir skömmu þar sem kemur meðal annars fram að uppsöfnuð viðhaldsþörf þjóðvega og sveitarfélagavega nemur samtals um 120 milljörðum króna. Þá eru fram undan gífurleg tækifæri í hröðum tækniframförum sem leitt geta til aukinnar framleiðni í greininni.“

Hverju beita Samtök iðnaðarins sér fyrir?

„Innan Samtaka iðnaðarins eru 1.400 fyrirtæki og félög sjálfstæðra atvinnurekenda og eru samtökin því stærstu samtök atvinnurekenda hér á landi. Samtökin beita sér fyrir eflingu íslensks iðnaðar og samkeppnishæfni hans en það varðar ekki eingöngu atvinnulífið heldur samfélagið allt. Fjögur helstu áherslumál samtakanna eru menntun, innviðir, nýsköpun og starfsumhverfi en það hefur sýnt sig að þessi málefni geta ráðið mestu um samkeppnishæfni ríkja. Menntun er forsenda góðra lífskjara, innviðirnir eru lífæðar samfélagsins, nýsköpun er ein meginforsenda verðmætasköpunar og gjaldeyrisöflunar og starfsumhverfi fyrirtækja þarf að vera skilvirkt, hagkvæmt og stöðugt.“

Þurfum að mæta þörfum vinnumarkaðarins

Hvað ættum við sem þjóð að gera fyrir iðnaðinn?

„Það er gríðarlega mikilvægt að við sem þjóð áttum okkur á og viðurkennum mikilvægi iðn- og verknáms í samfélaginu. Það er baráttumál hjá Samtökum iðnaðarins að hindranir séu fjarlægðar úr vegi þeirra sem ákveða að stunda slíkt nám en við sjáum því miður dæmi þess að möguleikar einstaklinga til áframhaldandi náms séu þrengdir ef viðkomandi eru ekki með hefðbundið stúdentspróf. Iðnnám er ekki síðri menntun og það er alveg ljóst að við þurfum að auka aðsókn í iðn- og verknám til að mæta þörfum vinnumarkaðar til framtíðar. Það er hluti af því að efla samkeppnishæfni okkar að búa einstaklinga vel undir störf í samfélaginu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál