Elstu systkinin gáfuðust

Kourtney Kardashian ætti samkvæmt rannsókninni að vera gáfaðri en þær …
Kourtney Kardashian ætti samkvæmt rannsókninni að vera gáfaðri en þær Kim og Khloé. Getty Images

Yngsta systkinið er kannski það frekasta en það elsta er gáfaðasta. Fræðimenn komust nýlega að því að elsta systkinið sé það gáfaðasta og því fleiri ár sem eru á milli systkinanna því meiri munur er á gáfnafari systkina. 

Independent greinir frá rannsókninni þar sem það kom einnig í ljós að eldri systkini eru öruggari með gáfur sínar á meðan þau yngri væri frekar óörugg með þær. Rannsóknin var gerð á fimm þúsund krökkum og voru þau mæld á tveggja ára fresti þangað til þau náðu 14 ára aldri. 

Ástæðan er ekki sú að öll góðu genin klárast í fyrstu tilraun heldur er hægt að kenna foreldrunum um. Því fleiri systkini sem þú átt því minni athygli færðu. Foreldrar eru sagðir eiga erfitt með að veita yngri systkinum jafn mikla athygli og þá sem elsta barnið fékk. Fumburðir eru sagðir fá meiri andlega örvun í byrjun og þrói þar með með sér betri heilavirkni en yngri systkinin. 

Venus Williams ætti að vera gáfaðri en Serena.
Venus Williams ætti að vera gáfaðri en Serena. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál