þri. 9. sept. 2025 14:40
Arðsemi háskólamenntunar á Íslandi hefur aldrei verið minni og er nú með því lægsta sem gerist í OECD-ríkjunum.
Beint: Borgar sig að vanmeta menntun?

BHM boðar til málþings vegna útgáfu nýrrar skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um virði háskólamenntunar sem unnin var fyrir BHM. Skýrslan sýnir að arðsemi háskólamenntunar á Íslandi hefur aldrei verið minni og er nú með því lægsta sem gerist í OECD-ríkjunum.

Hlutfall ungs fólks með háskólamenntun er undir meðaltali OECD og undir markmiðum Evrópusambandsins. Þróunin hér á landi er þannig í andstöðu við það sem sést í samanburðarlöndum, að því er segir í tilkynningu.

Fundurinn fer fram í Grósku og hefst kl. 15. 

Á málþinginu verður fjallað um hvað þessi þróun þýðir fyrir íslenskt samfélag og hvaða leiðir standa til boða til að tryggja sterkt þekkingarsamfélag til framtíðar. Hægt verður að fylgjast með því í beinu streymi hér fyrir neðan. 

 

Dagskrá málþingsins:

Setning málþings
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

Kynning á skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ
Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur og einn af höfundum skýrslunnar

Virði háskólamenntunar – sjónarhorn BHM
Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur BHM

Háskólasamfélagið og virði menntunar
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands

Menntun og atvinnulíf
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Tónlistarmiðstöðvar

Fundarstjórn
Katrín Jakobsdóttir, fv. ráðherra

Pallborðsumræður, þátttakendur:
• Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
• Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins
• Tanya Zharov, aðstoðarforstjóri Alvotech og stjórnarmaður í HR
• Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM

til baka