Ný braut var mörkuð að hluta og stikur settar upp í leiðangri á Fimmvörðuháls, sem fólk úr röðum Útivistar og björgunarsveitarinnar Dagrenningar á Hvolsvelli fór í nú á laugardaginn.
„Leiðin yfir hálsinn, það er frá Skógum niður í Goðaland við Þórsmörk, er fjölfarin og því þurfa öryggismálin þar að vera í lagi. Náttúran á þessum slóðum skapar um margt krefjandi aðstæður og nú, þegar komið er fram í september, var lag til að fara í þetta verkefni,“ segir Þorsteinn Pálsson hjá Útivist í samtali við Morgunblaðið.
Þorsteinn hefur umsjón með svonefndum Fimmvörðuskála, sem er efst á hálsinum og í um 1.100 metra hæð þar. Nú voru settar upp stikur á gönguleiðinni frá nefndum skála að gígunum Magna og Móða, sem til urðu í eldgosi árið 2010. Einnig voru úrbætur gerðar neðar á hálsinum þar sem í raun nýtt landslag hefur myndast með undanhaldi snjóa.
Þrjú ár eru síðan Útivist fór í að setja upp stikur á Fimmvörðuhálsi, á leið sem alls er um 16 kílómetra löng. Þar eru tveir skálar, Baldvinsskáli Ferðafélags Íslands og fyrrnefndur Fimmvörðuskáli Útivistar. „Björgunarsveitin á Hvolsvelli hefur verið ómetanlegur bakhjarl í þessu verkefni. Í hennar röðum eru menn sem þekkja til á þessum slóðum og eru með þau tæki sem þarf, drifmikla bíla og sexhjól,“ segir Þorsteinn.