Samfélagsmiðla- og hlaðvarpsstjarnan Sunneva Eir Einarsdóttir blés til heljarinnar veislu í tilefni af 29 ára afmæli sínu nú á dögunum, en hún varð árinu eldri þann 7. ágúst síðastliðinn.
Sunneva Eir fagnaði afmælinu í góðra vina hópi, en meðal þeirra sem skáluðu með afmælisbarninu voru þær Jóhanna Helga Jensdóttir, Birta Líf Ólafsdóttir og Eva Einarsdóttir, sem allar voru duglegar að sýna frá veisluhöldunum á samfélagsmiðlum.
Þema veislunnar var „sequins & spritz“ og klæddust vinkonurnar glitrandi kjólum og skáluðu í Aperol Spritz.
Afmælisbarnið klæddist stuttum bleikum kjól og voru skreytingarnar og afmæliskakan í stíl við kjólinn.
Sunneva Eir sýndi frá veisluhöldunum á Instagram-síðu sinni í gærdag og af myndum og myndskeiðum að dæma þá var mikið fjör og mikið skálað.