mán. 18. ágú. 2025 13:30
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.
Furða sig á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins

Landsvirkjun hefur ákveðið að skjóta ákvörðun Samkeppniseftirlitsins, sem hefur ákveðið að sekta Landsvirkjun um 1,4 milljarða kr., til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Landsvirkjun segist í tilkynningu vera ósammála niðurstöðunni og segir að eftirlitið hafi verið að sekta orkufyrirtækið fyrir of lágt orkuverð.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/08/18/sekta_landsvirkjun_um_1_4_milljarda/ 

Landsvirkjun segir að Samkeppniseftirlitið hafi komist að þeirri niðurstöðu í dag að Landsvirkjun hafi selt Landsneti rafmagn á of lágu verði á árunum 2017 til 2021.

„Forsaga málsins er sú að til fjölda ára keypti Landsnet rafmagn í sérstökum útboðum. Um er að ræða rafmagn sem er Landsneti nauðsynlegt til að bæta upp fyrir orku sem tapast í flutningskerfinu, svokölluð flutningstöp. Landsnet annast rekstur flutningskerfisins og innheimtir kostnað af rekstri þess, þar á meðal vegna flutningstapa, frá notendum, þ.e. stórnotendum, heimilum, stofnunum og fyrirtækjum,“ segir í tilkynningunni.

Mikilvægur þáttur í því að tryggja orkuöryggi

Þá kemur fram að kaup Landsnets á rafmagni til að bæta fyrir flutningstöp séu forsenda þess að tryggja megi örugga afhendingu rafmagns til almennra nota fyrir heimili og fyrirtæki. Kaupin séu af þeim sökum afar mikilvægur þáttur í því að tryggja orkuöryggi í landinu.

„Landsvirkjun hélt til fjölda ára eftir raforku í kerfum sínum sem var ætlað að tryggja nægt framboð til Landsnets. Engar slíkar skyldur hvíla á raforkuframleiðendum að lögum enn sem komið er, þrátt fyrir augljósa þörf fyrir reglusetningu um þetta efni,“ segir í tilkynningunni.

Ný skilgreining

Þá bendir Landsvirkjun á að með ákvörðun Samkeppniseftirlitsins hafi í fyrsta sinn verið tekin afstaða til þess hvernig skilgreina bæri markað vegna kaupa Landsnets á rafmagni til flutningstapa. Afstaða Samkeppniseftirlitsins sé sú að um sjálfstæðan markað sé að ræða á smásölustigi.

„Af þeirri skilgreiningu leiði að Landvirkjun hafi verið skylt að haga verðlagningu í útboðum Landsnets með þeim hætti að sölufyrirtækjum, s.s. N1, sem keyptu raforku af Landsvirkjun í heildsölu væri gert mögulegt að bjóða lægra en Landsvirkjun í umræddum útboðum. Nánar tiltekið að samkeppnislögin standi vörð um milliliði sem hvergi er að finna fordæmi fyrir, hvorki á Íslandi né í Evrópu,“ segir Landsvirkjun.

Mikil vonbrigði

Loks segir að Landsvirkjun sé ósammála niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og þeirri markaðsskilgreiningu sem byggt sé á enda sé ljóst að Landsnet sé, samkvæmt fyrirkomulagi raforkuviðskipta á Íslandi, kaupandi raforku á efra sölustigi en ekki endanotandi. Það hafi verið endanlega staðfest í síðasta mánuði þegar Landsnet hafi keypt alla þá orku sem tapaðist í flutningskerfinu beint í gegnum heildsölumarkað í stað sérstakra útboða eins og áður hafði verið.

„Þá eru það Landsvirkjun mikil vonbrigði að Samkeppniseftirlitið hafi séð ástæðu til að beita refsikenndum viðurlögum í málinu enda er ákvörðun eftirlitsins réttarskýrandi um nýtt samkeppnislegt álitaefni. Þá hefur þátttöku Landsvirkjunar í útboðum Landsnets fyrst og síðast verið ætlað að uppfylla samfélagslegar skyldur Landsvirkjunar og tryggja raforkuöryggi á Íslandi.

Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins verður skotið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála,“ segir í tilkynning

 

til baka