Íslenska kvikmyndin Ljósbrot, í leikstjórn og eftir handriti Rúnars Rúnarssonar og framleidd af Heather Millard, er ein af sjö kvikmyndum sem tilnefndar eru til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025. Verðlaunakvikmyndin verður svo kunngjörð þann 21. október.
Tilnefningar kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025 eru:
- Danmörk / Min Evige Sommer leikstjórn: Sylvia Le Fanu, handrit: Mads Lind Knudsen, Sylvia Le Fanu, framleiðandi: Jeppe Wowk. (sjá stiklu)
- Finnland / The Helsinki Effect handrit og leikstjórn: Arthur Franck, framleiðendur: Sandra Enkvist, Arthur Franck, Oskar Forstén. (sjá stiklu)
- Færeyjar / Seinasta paradís á jørð leikstjórn: Sakaris Stóra, handrit: Tommy Oksen, Mads Stegger, Sakaris Stórá, framleiðandi: Jón Hammer. (sjá stiklu)
- Grænland / WALLS – Akinni Inuk leikstjórn: Sofie Rørdam og Nina Paninnguaq Skydsbjerg, framleiðandi: af Emile Hertling Péronard.
- Ísland / Ljósbrot leikstjórn og handrit: Rúnar Rúnarsson, framleiðandi: Heather Millard, Rúnar Rúnarsson. (sjá stiklu)
- Noregur / Drømmer leikstjórn og handrit: Dag Johan Haugerud, framleiðendur: Yngve Sæther, Hege Hauff Hvattum. (sjá stiklu)
- Svíþjóð / Israel Palestine på svensk tv 1958-1989 leikstjórn og handrit: Höran Hugo Olsson, framleiðandi: Tobias Janson. (sjá stiklu)
Í tilkynningu er vitnað í rökstuðning dómnefndar sem segir að ljóðrænt raunsæi Rúnars setji hið ósagða framar því sem sagt er beinum orðum um leið og óvæntri kímni er fléttað inn í frásögnina.
https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/08/25/hefur_hlotid_meira_en_hundrad_althjodleg_verdlaun/
Rökstuðningur dómnefndar:
„Una, aðalpersóna myndarinnar, glímir við innri ólgu sem birtist í speglum og spegilmyndum og er sprottin af mikilli leynd sem einkenndi ástarsamband hennar. Elín Hall fer með hlutverk Unu og með hrárri berskjöldun leiðir hún áhorfendur í gegnum tilfinningaþrungið ferðalag þar sem sorgin kraumar undir niðri. Ljósbrot fjallar um hverfulleika tilverunnar og það hvernig allt getur breyst á augabragði. Ljóðrænt raunsæi Rúnars Rúnarssonar setur hið ósagða framar því sem sagt er beinum orðum um leið og óvæntri kímni er fléttað inn í frásögnina. Með því að leyfa því harmræna og því fyndna að standa samhliða kemst Rúnar hjá því að lýsa sorginni sem einvíðu fyrirbæri og sér jafnframt til þess að kvikmyndin endurspegli hið oft og tíðum mótsagnakennda róf mannlegra tilfinninga í heild.“
Í tillkynningu segir jafnframt að árið 2025 marki sérstök tímamót í sögu verðlaunanna en í fyrsta sinn eru sjö kvikmyndir tilnefndar, þar af þrjár eftirminnilegar heimildarmyndir og er færeysk kvikmynd tilnefnd í fyrsta sinn.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/08/14/madur_er_eiginlega_half_ordlaus/