sun. 6. júlí 2025 18:41
Gul veðurviðvörun verður í gildi í Breiðafirði og í Faxaflóa á morgun.
Gul viðvörun á morgun

Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir morgundaginn í Faxaflóa og Breiðafirði vegna suðaustanstrekkings.

Í Breiðafirði verður viðvörunin í gildi frá klukkan 15 til miðnættis. Spáð er suðaustan 10-18 metrum á sekúndu með vindhviðum sem ná 25-30 metrum á sekúndu á Snæfellsnesi.

Í Faxaflóa tekur viðvörunin gildi klukkan 18 og gildir einnig til miðnættis. Þar er búist við suðaustan 8-15 metrum á sekúndu, með vindhviðum allt að 25 metrum á sekúndu við fjöll.

 

til baka