Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í hádeginu vegna slasaðs göngumanns á gönguslóð að Þríhnúkagíg frá Bláfjallavegi.
Guðmundur Hreinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að göngumaðurinn hafi verið slasaður á fæti.
Maðurinn var fluttur af slysstað á sjúkrahús þar sem hann hlaut viðeigandi aðstoð.
Að sögn Guðmundar komu viðbragðsaðilar að manninum á fjallabílum og sexhjólum.