sun. 6. júlí 2025 16:27
Dælubílar slökkvilliðsins dældu vatni úr Smáralindinni í tvo tíma.
Vatnsleki í Smáralind

Slökkvilið var kallað út á tíunda tímanum í morgun vegna heitavatnsleka í Smáralind. Tveir dælubílar slökkviliðsins dældu vatni út í um tvær klukkustundir.

Guðmundur Hreinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að lekinn hafi átt sér stað á annarri hæð.

Talið er að lekinn hafi teygt anga sína um þúsund fermetra.

Lak niður á jarðhæð

Þá skilst Guðmundi að vatnið hafi jafnframt lekið niður á jarðhæð Smáralindarinnar en gat ekki sagt til um hvar og hvort að mikið tjón hafði orðið. 

Lekinn hafði engin áhrif á þjónustu Smáralindar þar sem slökkvilið lauk aðgerðum fyrir opnun. 

 

til baka