Yfirvöld í Tyrklandi handtóku í gær þrjá borgarstjóra Lýðveldisflokksins CHP en fjöldi kjörinna fulltrúa hefur verið handtekinn í landinu að undanförnu.
Þeir sem handteknir voru í gær eru Abdurrahman Tutdere, borgarstjóri Adiyaman, Zeydan Karalar, borgarstjóri Adana og Muhittin Böcek, borgarstjóri Antalya.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/03/23/handtoku_borgarstjorans_motmaelt_hardlega/
Segist vera að uppræta spillingu
Ekrem Imamoglu, borgarstjóri Istanbúl, var handtekinn í vor sakaður um spillingu í starfi en handtaka hans leiddi til gríðarmikilla mótmæla. Stjórn Receps Tayyip Erdogan forseta Tyrklands virðist vera í skipulagðri herferð gegn stjórnarandstöðunni í landinu.
Forsetinn segir handtökurnar ekki hluta að pólitískri herferð. Hann segist einfaldlega vera að uppræta spillingu innan CHP.