Tónleikar Stjórnarinnar á Allt í blóma í Hvergerði féllu niður í gærkvöldi vegna veikinda söngkonunnar Siggu Beinteins.
Þetta staðfestir Sigurgeir Skafti Flosason, einn stofnenda og skipuleggjenda hátíðarinnar, í samtali við mbl.is.
Hann segir að tónleikar með Stjórninni í Hveragerði verði auglýstir síðar og að tix.is hafi endurgreitt þeim sem keyptu miða.
Markaður, barnaskemmtun og tónleikar
Að undanskildum veikindum Siggu segir Sigurgeir hátíðina hafa gengið vonum framar.
Í dag hefði verið barnaskemmtun og markaður þar sem hinir ýmsu munir voru til sölu.
„Það er alltaf mikil ánægja með þennan markað, hann er ákveðin stemning,“ segir Sigurgeir.
Í kvöld verða tónleikar og ball sem mikil spenna ríkir fyrir.