Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í gær „stóra fallega frumvarpið“, og varð það þar með að bandarískum lögum. Trump hafði lagt mikinn þunga á að geta undirritað frumvarpið í gær, á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, og tókst það eftir langa umræðu á Bandaríkjaþingi.
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2025/07/04/trump_gerdi_allt_rett/
Hampaði flugmönnunum sem sprengdu í Íran
Trump fagnaði frumvarpinu í gær og sagði að það myndi tryggja efnahag, landamæri og herveldi Bandaríkjanna. Trump undirritaði frumvarpið eftir hátíðlega athöfn við Hvíta húsið, þar sem hann hampaði flugmönnunum sem tóku þátt í loftárásum Bandaríkjanna á Íran í síðasta mánuði.
Flugu B-2-sprengjuvélar Bandaríkjahers yfir Hvíta húsið við athöfnina.