Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á um hálft kíló af kókaíni, fjögur kíló af maríjúana og á annan tug milljóna króna í reiðufé við húsleitir í vikunni. Þá var stöðvuð kannabisræktun á tveimur stöðum.
Fjórir voru handteknir í aðgerðunum, að fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þeim hefur þó öllum verið sleppt, samkvæmt Gunnari Rúnari Sveinbjörnssyni, upplýsingafulltrúa lögreglunnar.
Grunaðir um sölu á samfélagsmiðlum
Fjórmenningarnir eru grunaðir um umfangsmikla og skipulagða sölu og dreifingu fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu, framleiðslu þeirra og peningaþvætti. M.a. sölu fíkniefna í gegnum samfélagsmiðla.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðirnar.
Rannsókn málsins miðar vel, að segir í tilkynningunni, en ekki var hægt að fá frekari upplýsingar að svo stöddu.