Stjórnir Sparisjóðs Höfðhverfinga hf. og Sparisjóns Strandamanna hf. hafa undirritað samrunaáætlun um sameiningju sjóðanna sem ganga á í gegn í upphafi næsta árs.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá báðum sparisjóðum.
Eftir sameiningu mun sjóðurinn heita Smári sparisjíoðu hf. og mun áfram vera markaðsettur undir merkjum sparisjóðanna. Auk áætlunarinnar um samrunannn voru undirritaðir samningar við KEA sem eiga að tryggja sameinaða sjóðinum aukið hlutafé til vaxta, að því er segir í tilkynningunni.
Þar kemur einnig fram að fjárhagsstaða Smára muni verða traust og sjóðurinn verði með hátt eiginfjárhlutfall og sterka lausafjárstöðu.
“Með þessu eflast þessir sjóðir mjög mikið og hafa aukna getu til að þjónusta sín nærsvæði enn betur en þeir hafa gert til þessa. Þetta styrkir líka heildarumgjörð þeirra sparsjóða sem eru starfandi en þeir verða þá þrír og allir svipaðir að stærð. Við tekur mjög spennandi verkefni við það að leiða saman þessi rótgrónu fyrirtæki og sækja fram,” segir Jóhann Ingólfsson stjórnarformaður Sparisjóðs Höfðhverfinga sem segist vera ánægður með samrunann.
Víðir Álfgeir Sigurðarson, stjórnarformaður Sparisjóðs Strandamanna, horfir bjartsýnn fram á veginn. “Mikil tækifæri eru í sameiningu þessara sjóða. Sameinaður sparisjóður verður fjárhaglega sterkur og enn betur í stakk búinn til þess að styða við nærsamfélagið og sækja fram. Áfram verður unnið að auknu samstarfi sparisjóða í gegnum Samband Íslenskra Sparisjóða. Framundan eru krefjandi verkefni við samþættingu sjóðanna og vöxt til framtíðar.”