Á Norðurbakka í Hafnarfirði er björt og heillandi tveggja herbergja íbúð til sölu. Íbúðin er á þriðju hæð með svölum sem snúa í suð-vesturátt.
Íbúðin er rúmgóð með einu svefnherbergi, baðherbergi og alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Hún er innréttuð með fallegum eikarinnréttingum og gólfsíðum gluggum sem veita fallegt útsýni út á höfnina og hafið.
Hverfið er vel staðsett þar sem stutt er á kaffihús, veitingastaði, banka, verslun, í sund og aðra þjónustu. Þar að auki eru einstaklega fallegar gönguleiðir í nágrenni.