fös. 4. júlí 2025 09:42
Laxey byggir upp landeldi á laxi í Vestmannaeyjum
Milljarðarnir streyma til Eyja

Laxey, fyrirtæki sem byggir upp landeldi á laxi í Vestmannaeyjum, hefur lokið við seinni hluta hlutafjárútboðs síns og tryggt sér um 4 milljarða króna í viðbótarhlutafé, eins og fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu. Þetta er önnur fjármögnun félagsins á árinu og hefur Laxey þannig alls aukið hlutafé sitt um 9 milljarða króna, þar sem um helmingur kemur frá nýjum fjárfestum.

Stærstu lífeyrissjóðir landsins meðal fjárfesta

Vegna mikillar eftirspurnar var útboðið stækkað umfram upphaflegar áætlanir. Þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins – Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Gildi – tóku þátt í aukningunni. Eftir viðskiptin heldur fjölskylda Sigurjóns Óskarssonar áfram forystu með um 38% hlut, erlendir strategískir fjárfestar fara með um 21% og íslenskir lífeyrissjóðir um 20%.

Féð mun m.a. nýtast til byggingar nýs stórseiðahúss við Viðlagafjöru, þar sem átta 1.100 rúmmetra ker verða í yfirbyggðu rými, sem á að tryggja hámarksnýtingu, líföryggi og rekstraröryggi. Þá er uppsetningu á sláturhúsi einnig lokið í haust, sem mun styrkja virðiskeðju Laxey með því að hafa alla vinnslu frá eggi til slátrunar á eigin vegum.

Fyrsti hópur seiða sem kom úr frjóvguðum hrognum í nóvember 2023 hefur nú náð meðalþyngd upp á 2 kg og stefnt er að slátrun í nóvember 2025, þegar fiskurinn hefur náð 4-5 kg sláturstærð.

 

Framkvæmdir við annan áfanga hafnar

Framkvæmdir við annan áfanga eldisstöðvarinnar eru þegar hafnar og standa yfir samkvæmt áætlun. Fyrsta kerið hefur risið og mun áfanginn styðja við aukna framleiðslugetu félagsins.

„Við lítum á þessa árangursríku fjármögnun sem staðfestingu á þeirri trú sem fjárfestar bera til félagsins og framtíðarsýnar okkar. Hún gerir okkur kleift að hraða uppbyggingu, styrkja tekjustoðir og efla samstarf við aðra í greininni á grunni sem byggir á stöðugum og ábyrgum forsendum sem skaða hvorki samfélag né umhverfi og eru raunhæfar til framtíðar. Það að fá enn fleiri öfluga fjárfesta að félaginu eflir það, mun hjálpa til við uppbyggingu næstu áfanga og styðja við vegferð fyrirtækisins. “ segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxey.

Arion banki annaðist umsjón með útboðinu og Mar Advisors var fjármálaráðgjafi félagsins.

til baka