Spænska knattspyrnufélagið Barcelona er sagt leiða kapphlaupið um spænska sóknarmanninn Nico Williams. Sky Sports í Þýskalandi greinir frá.
Williams hefur verið eftirsóttur víða í Evrópu eftir gott Evrópumót með spænska landsliðinu á síðasta ári. Spánn varð Evrópumeistari eftir 2:1-sigur á Englandi en Williams skoraði fyrra mark liðsins í úrslitunum.
Bayern München hefur einnig áhuga á hinum 22 ára gamla Williams en þýska stórveldið er í leit að sóknarmanni.
Williams skoraði 11 mörk og gaf sjö stoðsendingar á nýafstaðinni leiktíð með Athletic Bilbao á Spáni.