Palazzo Maffei, listasafn á Ítalíu, leitar nú tveggja ferðamanna sem brutu „stól van Gogh“ á sýningu safnsins.
Atvikið náðist á upptöku eftirlitsmyndavéla. Þar má sjá hvar miðaldra par þykist sitja í stólnum sem var einn af sýningarmunum. Konan þóttist aðeins sitja í stólnum en eiginmaður hennar tyllti sér í stólinn með þeim afleiðingum að hann brotnaði undan manninum. Parið flúði vettvanginn í kjölfarið.
Stóllinn sem um ræðir var hvorki í eigu né úr smiðju van Gogh. Hann er samtímalistaverk úr smiðju ítalska samtímalistamannsins Nicola Bolla. Fyrirmynd stólsins er fengin úr málverki van Gogh frá árinu 1888.
Fíflaskapur
Safnið lýsti atvikinu sem „martröð hvers safns“. Fulltrúar þess hafa gert lögreglunni viðvart um atvikið og gefið út myndbandið. Stóllinn hefur nú verið settur saman aftur.
Listamaður stólsins, Bolla, hefur einnig tjáð sig um atvikið. „Þetta var fíflaskapur,“ sagði hann. Bolla sagðist þó jafnframt sjá jákvæða hlið á málinu.
„Þetta var eins konar gjörningur. Venjulegt fólk framkvæmir þá líka, ekki bara listamenn,“ sagði Bolla.