mán. 16. júní 2025 15:04
Innanríkisráðherra Úkraínu hefur sakað Rússland um að flækja viljandi ferlið við að bera kennsl á líkin.
Hafa endurheimt yfir 6.000 lík

Yfirvöld í Kænugarði hafa greint frá því að þeim hafi borist 1.245 lík úkraínskra ríkisborgara frá Rússlandi í dag. Alls hefur Úkraína endurheimt yfir 6.000 lík undanfarna viku.

Um er að ræða síðasta áfangann í skiptum sem samið var um milli ríkjanna fyrr í mánuðinum í Istanbúl. Rússlandi bárust í dag 51 lík rússneskra hermanna frá Úkraínu og hefur alls fengið til baka 78 lík.

Rússneska varnarmálaráðuneytið greinir þó frá því að 1.248 lík hafi verið afhent Úkraínu í dag, sem eru þremur fleiri en Kænugarður segist hafa móttekið.

Rússland og Úkraína skiptust á stríðsföngum

Segir Rússa viljandi gera auðkenningu erfiðari

Igor Klymenko, innanríkisráðherra Úkraínu, hefur sakað Rússland um að flækja viljandi ferlið við að bera kennsl á líkin og nefnir t.a.m. að líkamshlutar úr sama líki séu stundum í mismunandi pokum.

Hann bætir við að Úkraína hafi einnig fengið líkamsleifar rússneskra hermanna í bland við úkraínska á fyrri stigum skiptanna í síðustu viku.

Rússland hefur lýst sig reiðubúið að afhenda önnur 2.239 lík úkraínskra hermanna til viðbótar við það sem samið var um í Istanbúl.

til baka