mán. 16. júní 2025 19:49
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir og Katherine Pettet sækja að Ídu Marín Hermannsdóttur í kvöld.
Ótrúlegur viðsnúningur í Kaplakrika

Ída Marín Hermannsdóttir átti stórleik fyrir FH þegar liðið tók á móti Tindastóli í 9. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í kvöld. Leiknum lauk með stórsigri FH, 5:1, en Ída Marín gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum.

FH fer með sigrinum upp í annað sæti deildarinnar og í 22 stig, líkt og topplið Breiðabliks og Þróttur úr Reykjavík sem er í þriðja sætinu, en Tindastóll er í níunda og næstneðsta sætinu með 7 stig.

Makala Woods kom Tindastól yfir strax á 28. mínútu eftir mikinn vandræðagang í vörn FH. Sandra Sigurðardóttir í marki Hafnfirðinga  reyndi þá að sóla Woods og Elísu Bríeti Björnsdóttir en Woods vann boltann af henni og skoraði í tómt markið.

Tindastóll var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og fékk nokkur góð tækifæri til þess að bæta við fleiri mörkum en inn vildi boltinn ekki og staðan því 1:0 í hálfleik, Tindastól í vil.

Viðsnúningur í seinni hálfleik

Hafnfirðingar byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti og Birna Kristín Björnsdóttir jafnaði metin fyrir FH á 47. mínútu með föstu skoti úr teignum eftir að Genevieve Crenshaw í marki Tindastóls hafði slegið fyrirgjöf Thelmu Karenar Pálmadóttur út í teiginn.

Ída Marín Hermannsdóttir kom FH yfir á 55. mínútu með föstu skoti úr teignum eftir frábæra fyrirgjöf MauyHansen en Crenshaw í markinu réð ekki við skotið.

Maya Hansen bætti svo við þriðja marki FH á 67. mínútu þegar hún slapp ein í gegnum vörn Tindastóls. Hún fór illa með Bryndísi Rut Haraldsdóttur áður en hún þrumaði boltanum milli fóta Crenshaw í markinu.

Ída Marín bætti svo við fjórða markinu á 72. mínútu þegar Hansen sendi hana í gegn Crenshaw kom út úr markinu og freistaði þess að loka á hana en Ída átti lúmskt skot sem lak í netið eftir að María Dögg Jóhannesdóttir, varnarmaður Tindastóls, hafði reynt sitt besta til þess að koma boltanum frá marki.

Ída Marín var ekki hætt og hún fullkomnaði þrennuna á 83. mínútu þegar Ingibjörg Magnúsdóttir átti frábæra fyrirgjöf frá vinstri. Ída Marín kom á ferðinni og þrumaði boltanum með viðstöðulausu skoti á lofti úr teignum og staðan orðin 5:1.

FH tekur á móti Val í næstu umferð, þann 21. júní á meðan Tindastóll heimsækir nýliða FHL þann 20. júní.

til baka