Breiðablikskonur eru komnar á topp Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu eftir góðan 2:0-sigur á Þór/KA í dag. Leikið var í Boganum á Akureyri og var leikurinn í 9. umferð deildarinnar.
Hefðbundin deildarkeppni er nú hálfnuð og er Breiðablik með 22 stig ásamt Þrótti og FH en Þór/KA er í 4. sæti með 15 stig. Blikakonur sitja í toppsætinu vegna yfirburðar markatölu en þær hafa skorað 37 mörk og eiga haug af mörkum á Þrótt og FH.
Blikakonur byrjuðu leikinn af fítonskrafti og hreinlega linntu ekki látum fyrr en þær skoruðu. Birta Georgsdóttir stakk sér í gegn um vörn Þórs/KA á 15. mínútu og afgreiddi boltann örugglega í markið. Áður hafði hún klúðrað algjöru dauðafæri. Leikmenn Þórs/KA áttu í miklu basli í fyrri hluta fyrri hálfleiks. Supu áhorfendur hveljur og jesúsuðu sig á víxl þegar Blikakonur hirtu af þeim boltann ítrekað nærri marki Þórs/KA.
Loks þegar heimakonur voru farnar að komast framar á völlinn og bíta aðeins frá sér þá bætti Birta við öðru marki. Fékk hún boltann óáreitt í miðjum vítateignum og aftur sýndi hún yfirvegun og setti boltann örugglega í vinstra markhornið. Markið kom á 35. mínútu.
Nokkuð jafnræði var með liðunum eftir þetta mark en heimakonur klúðruðu full mörgum upphlaupum með því að fá dæmda á sig rangstöðu. Blikakonur höfðu gert sig sekar um það sama þegar sóknarþungi þeirra var sem mestur fyrri hluta hálfleiksins.
Má segja að seinni hálfleikurinn hafi verið í jafnvægi. Blikar sóttu meira og voru beittari en heimakonur tóku nokkrar rispur og ógnuðu inn á milli. Vörn Blika var þétt og sköpuðu heimakonur engin alvöru færi lengstum. Það var Breiðablik sem var nær því að skora þriðja mark sitt en Þór/KA að minnka muninn.
Á lokakaflanum fóru leikmenn Þórs/KA loks að þjarma aðeins að Blikunum en flest skot þeirra voru stöðvuð af þéttum varnarmúr Breiðabliks. Í uppbótatíma átti Sandra María Jessen svo skot í slá en skömmu síðar var flautað til leiksloka.
Blikakonur voru virkilega beittar fyrsta hálftímann og skilaði grimmd þeirra og snerpa nokkrum góðum færum. Samantha Smith gerði oft usla og var hún hættulegasti leikmaður Breiðabliks.
Heimakonur virkuðu taugatrekktar þegar pressa Breiðabliks var sem mest. Þær misstu marga bolta frá sér eða spiluðu langt til baka til þess eins að þruma boltanum sem lengst frá marki sínu. Aðeins Kimberly Dóra Hjálmarsdóttir virtist tilbúin í alvöru hamagang og baráttu. Hún var langbest í liði Þórs/KA, vann mikið af boltum og spilaði óhikað fram á við.