Jón Þór Hauksson er hættur sem þjálfari karlaliðs ÍA í knattspyrnu.
Þetta staðfesti félagið á samfélagsmiðlum í dag en Skagamönnum hefur gengið illa á tímabilinu og eru í neðsta sæti Bestu deildarinnar með níu stig eftir ellefu umferðir. ÍA tapaði illa fyrir nýliðum Aftureldingar í gærkvöldi, 4:1. Ákvörðunin er þá sögð vera sameiginleg.
https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2025/06/15/eg_raed_ekki_thjalfara_hvorki_i_thessu_felagi_ne_od/
Jón Þór var á sínu fjórða tímabili með ÍA en liðið féll árið 2022 en vann síðan 1. deildina ári síðar.
ÍA stóð sig vel sem nýliði í deildinni í fyrra og hafnaði í fimmta sæti. Þrátt fyrir litlar breytingar á leikmannahópnum hefur árangur í ár verið slæmur.
Samkvæmt ÍA hefur félagið hafið leit að nýjum þjálfara og verður tilkynnt um framhaldið þegar það liggur fyrir.
Jón Þór þjálfaði áður Vestra og íslenska kvennalandsiðið.