mán. 16. júní 2025 11:45
Frá vinstri: Rósa Björk Pétursdóttir, Tinna Guðrún Alexandersdóttir, Þóra Kristín Jónsdóttir og Brynjar Þór Þorsteinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka.
Þrír lykilleikmenn framlengja

Íslandsmeistarar Hauka hafa samið við þrjá lykilleikmenn fyrir komandi tímabil í úrvalsdeild kvenna í körfubolta.

Þær Þóra Kristín Jónsdóttir, Tinna Guðrún Alexandersdóttir og Rósa Björk Pétursdóttir skrifa allar undir nýjan tveggja ára samning hjá Haukum.

Þær spiluðu allar stórt hlutverk þegar liðið varð deildar- og Íslandsmeistari á síðustu leiktíð.

„Það er mjög mikilvægt að halda þessum leikmönnum hjá okkur sem allar léku risastórt hlutverk í vetur og stigu upp þegar á reyndi til að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Þessi íslenski kjarni í liðinu er ótrúlega öflugur og það verður gaman að vinna með þeim áfram og keppa um alla titla sem eru í boði,“ segir Emil Barja þjálfari Hauka í tilkynningu frá félaginu. 

 

 

 

til baka