Bryan Mbeumo, sóknarmaður enska knattspyrnufélagsins Brentford, er eftirsóttur af bæði Manchester United og Tottenham.
Manchester United var líklegasti áfangastaður Mbeumo en eftir að Thomas Frank, fyrrverandi stjóri Brentford, tók við Tottenham hefur hann einnig verið orðaður við Evrópudeildarmeistarana.
https://www.mbl.is/sport/enski/2025/06/13/vill_taka_framherjann_med_ser_til_tottenham/
Mbeumo átti frábært tímabil og skoraði 20 mörk fyrir Brentford en hann er sagður metinn á 60 milljónir punda.
„Öll þessi umræða um mín mál og möguleg félagaskipti er svolítið nýtt fyrir mér, verð ég að viðurkenna. En svona er þetta, hluti af því að vera fótboltamaður og þú verður að sætta þig við það,“ sagði Mbeumo við Sky Sports en hann fór ekki nánar í hlutina.