Bretinn Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er miður sín eftir að hann keyrði yfir skógarmúrmeldýr í Formúlu 1 kappakstrinum í Kanada í gær.
Hamilton, sem keyrir fyrir Ferrari, ók á dýrið á 13. hring kappakstursins en hann hafnaði í sjötta sæti í gær.
Atvikið skildi eftir tjón á bílnum en liðið áætlaði að tjónið kostaði Hamilton um hálfa sekúndu á hring það sem eftir var af keppninni.
Hamilton hafði hins vegar meiri áhyggjur af dýrinu en hann er bæði vegan og mikill dýravinur.
„Ég elska dýr og er afar leiður yfir þessu. Þetta er hræðilegt, ég hef aldrei lent í þessu áður,“ sagði Hamilton eftir kappaksturinn.
Hamilton hefur ekki átt draumabyrjun hjá Ferrari en hann situr í sjötta sæti í heimsmeistarakeppni ökuþóra.