mán. 16. júní 2025 21:08
Daníel Hafsteinsson og Aron Sigurðarson í leiknum í kvöld.
Víkingur á toppinn eftir fimm marka leik

Víkingur endurheimti toppsæti Bestu deildar karla í fótbolta með heimasigri á KR í Reykjavíkurslag í 11. umferðinni á Víkingsvelli í kvöld, 3:2. Víkingur er nú með 23 stig, stigi meira en Breiðablik í öðru sæti. KR er áfram í níunda sæti með 13 stig.

KR-ingar voru kraftmeiri í upphafi leiks og var það því gegn gangi leiksins þegar Helgi Guðjónsson kom Víkingi yfir á 11. mínútu úr víti eftir að Halldór Snær Georgsson í marki KR tók Valdimar Þór Ingimundarson niður innan teigs.

KR-ingar jöfnuðu í 1:1 með víti frá Jóhannesi Kristni Bjarnasyni hinum megin þegar Gabríel Hrannar Eyjólfsson skaut að marki eftir sprett hjá Aroni Sigurðarsyni. Karl Friðleifur Gunnarsson kastaði sér fyrir boltann og varði með hendinni. Slapp bakvörðurinn með gult spjald og Jóhannes skoraði af öryggi.

Karl Friðleifur var aftur á ferðinni á 43. mínútu þegar hann slapp í gegn eftir glæsilega sendingu frá Matthíasi Vilhjálmssyni og skoraði annað mark Víkings af öryggi.

Aðeins tveimur mínútum síðar var staðan aftur jöfn en þá skoraði Matthias Præst annað mark KR er hann slapp í gegn eftir glæsilegan sprett og sendingu frá Jóhannesi og voru hálfleikstölur 2:2.

Víkingar voru ekki lengi að komast yfir í þriðja skipti í seinni hálfleik því Gunnar Vathamar skallaði í netið á 49. mínútu eftir góða hornspyrnu frá Gylfa Þór Sigurðssyni. Leikurinn róaðist aðeins eftir það en Gylfi átti stórhættulegt skot í stöngina á 70. mínútu.

Fimm mínútum síðar fékk Eiður Gauti gott færi hinum megin en setti boltann yfir úr góðri stöðu í teignum. Nær komust KR-ingar ekki og Víkingar fögnuðu sigri í skemmtilegum leik.

til baka