Markvörðinn Cecilíu Rán Rúnarsdóttur þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, og allra síst áhugamönnum um knattspyrnu, enda er hún ein fremsta knattspyrnukona okkar Íslendinga í dag. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún komið víða við á knattspyrnuferli sínum, bæði hérlendis og erlendis, sem lánsmaður frá Bayern München í Þýskalandi, ásamt því að standa á milli stanganna hjá íslenska landsliðinu.
Cecilía Rán er þessa dagana stödd á Íslandi þar sem íslenska landsliðið undirbýr sig af kappi fyrir þátttöku í Evrópumóti landsliða sem hefst núna í júlí í fjallalandinu mikla, Sviss. Knattspyrnukonan leit aðeins upp frá stífum æfingum og ræddi við blaðamann um lífið á Ítalíu, ástina og ástríðuna fyrir leiknum.
Byrjaði snemma
Cecilía Rán fæddist í Reykjavík þann 26. júlí 2003 og er elst þriggja systkina. Ung að árum sýndi hún strax mikinn áhuga á fótbolta og byrjaði að æfa með Þrótti aðeins fimm ára gömul.
„Já, það má segja að ferillinn hafi byrjað snemma, ég var komin í takkaskóna í leikskóla,“ segir Cecilía Rán og hlær. „Ég tók fyrstu skrefin mín með Þrótti en færði mig yfir til Aftureldingar þegar við fluttum í Mosfellsbæ, þá var ég að mig minnir sjö ára.“
Á Pæjumótinu Í Vestmannaeyjum árið 2013 setti Cecilía Rán upp markmannshanskana í fyrsta sinn. Hún segir það hafa markað ákveðin tímamót.
„Já, það gerðist eitthvað þegar ég setti upp markmannshanskana. Ég tengdi mun betur við leikinn og komst mjög fljótt að því að ég væri með hæfileika til þess að vera markvörður.“
Cecilía Rán var valinn í landsliðshópinn í september 2019, þá nýútskrifuð úr grunnskóla, og hún spilaði fyrsta landsliðsleikinn aðeins 16 ára gömul.
„Það var mjög stressandi að labba út á völlinn í landsliðsbúningnum í fyrsta sinn, en það er heiður lífs míns að fá að vera hluti af íslenska kvennalandsliðsliðinu og ég er alltaf spennt að spila með þessum frábæru og hæfileikaríku stúlkum.“
„Ég vissi ekki alveg út í hvað ég var að fara“
Hverfum nú fram til ársins 2021, eða þegar Cecilía Rán skrifaði undir samning hjá Örebro og fluttist ein síns til liðs til Svíþjóðar, þá 18 ára gömul.
Var erfitt að flytja?
„Það var mjög erfitt. Ég vissi ekki alveg út í hvað ég væri að fara og þurfti að venjast nýjum hversdagleika, án fjölskyldu og vina, en sem betur fer þá voru mamma, pabbi og systkini mín dugleg að heimsækja mig. En ég viðurkenni fúslega að það var erfitt að halda utan um allt sem þurfti að gera, bara þetta klassíska, eins og að þrífa íbúðina, þvo þvottinn, vaska upp, versla í matinn og elda,“ segir hún og hlær.
Hvernig leist þér á Örebro?
„Mjög vel! Örebro er lífleg og sjarmerandi borg í hjarta Svíþjóðar og með mikið úrval af skemmtilegri afþreyingu. Mér leið mjög vel þar og var fljót að læra á lífið og tilveruna í borginni.“
Eins og gengur og gerist í atvinnumennskunni þá stoppaði Cecilía Rán stutt við í Svíþjóð, þrátt fyrir að líka lífið vel, þar sem henni bauðst að ganga til liðs við stórliðið Bayern München í Þýskalandi.
Hvernig var að fara frá Svíþjóð til Þýskalands?
„Það var mikil breyting. Fólkið í Svíþjóð er mun jákvæðara en fólkið í Þýskalandi, fólkið þar er mjög kassalagað, sem kom mér frekar mikið á óvart. En lífið í Þýskaland var mjög ljúft. Um leið og ég mætti á æfingu hjá Bayern þá fattaði ég hvað allt var stærra og meira, það var kannski stærsta breytingin fyrir mig. Það var alvöru, alvöru dæmi, að vera komin í raðir Bayern. Ég var samt mjög heppin þar sem góðar vinkonur mínar úr landsliðinu, Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, voru einnig að spila með liðinu. Við höfðum því félagsskap hver af annarri og vorum duglegar að bralla ýmislegt saman, utan vallarins.“
„Ég algjörlega elska Ítalíu“
Cecilía Rán flutti til Ítalíu, nánar tiltekið Mílanó, í júlí á síðasta ári, til að spila fótbolta með Inter. Þar býr hún ásamt kærasta sínum, Róberti Dalmari Gunnlaugssyni.
„Ég og Róbert byrjuðum saman árið 2023 og kynntumst í gegnum sameiginlega vini. Hann starfar sem sjómaður og fer á sjó í þrjár vikur í senn, frá Íslandi, og flýgur út til Ítalíu og dvelur hjá mér þess á milli. Hann er mjög duglegur.“
Er ekki alltaf mikil tilhlökkun að fá hann aftur út?
„Jú, ég er alltaf spennt að taka á móti honum. Hann gefur mér svo mikið og það er alltaf jafngaman hjá okkur.“
Hvað finnst ykkur skemmtilegast að gera saman á Ítalíu?
„Við erum mjög dugleg að ferðast og fórum til að mynda til Cinque Terre nú á dögunum, það er ótrúlega fallegt svæði og ég mæli eindregið með því að fólk fari þangað. Ég algjörlega elska Ítalíu, Mílanó er skemmtilegasti staður sem ég hef búið á.“
Hver finnst þér vera helsti munurinn á Íslendingum og Ítölum?
„Íslendingar eru stöðugt að flýta sér á meðan Ítalir taka öllu með stóískri ró. Á Íslandi eru allir steyptir í sama mót, klæða sig eins, kaupa sömu hlutina og hafa sömu skoðanirnar, en á Ítalíu fer fólk eigin leiðir og fylgir hjartanu.“
Ert þú hinn týpíski Íslendingur eða er meiri Ítali í þér?
„Ég er svona mitt á milli.“
„Ég kíki alveg í búðirnar“
Þar sem Cecilía Rán er búsett í einni stærstu tískuborg í heimi þá varð blaðamaður að forvitnast aðeins um tískuáhugann og hvort hann hafi breyst eða aukist eftir flutningana.
„Ég pæli meira í fötum núna en áður en ég er engin hátískudrós. Ég hef samt gaman af því að kíkja í búðir og kann að meta fallegar flíkur og fylgihluti.“
„Íslenski fiskurinn er bestur“
Eins og fram hefur komið þá er Cecilía Rán stödd á Íslandi um þessar mundir vegna undirbúnings fyrir Evrópumótið. Íslensku stelpurnar eiga opnunarleik gegn Finnlandi, þann 2. júlí næstkomandi.
Nú er Evrópumótið handan við hornið, er ekki mikil spenna í hópnum?
„Jú, við erum ótrúlega spenntar og klárar í verkefnið.“
Og svona í lokin, hvers saknarðu mest við Ísland?
„Fjölskyldunnar og íslenska fisksins. Það er ekkert sem toppar nýveiddan íslenskan fisk. Ítalirnir skilja það auðvitað ekki, en matur á Ítalíu er auðvitað á heimsmælikvarða, ég er alltaf að borða pasta. Carbonara er best í heimi en íslenski fiskurinn er samt betri.“