Donald Trump Bandaríkjaforseti hafnaði áformum Ísraela um að ráða af dögum Ayatollah Ali Khamenei, æðsta klerk Írans.
Þrír bandarískir embættismenn greindu CBS News frá þessu.
Trump er sagður hafa sagt Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, að það væri „ekki góð hugmynd” að ráða Khamenei af dögum, að sögn eins embættismannsins.
Forsetinn hefur ekkert tjáð sig opinberlega um málið.
Í viðtali við Fox News á föstudaginn staðfesti Netanjahú hvorki né neitaði frétt Reuters um að Trump hefði litist illa á áætlun um að myrða æðsta klerkinn.