Fimm manns eru látnir og 92 særðir eftir flugskeytaárásir Írans á Ísrael í nótt, að sögn ísraelskrar hjálparstofnunar.
Þeir sem létust fundust á fjórum mismunandi stöðum í miðhluta Ísraels, sagði hjálparstofnunin Magen David Adom. Á meðal þeirra voru tvær konur og tveir menn um sjötugt.
Átökin á milli Írans og Ísraels hafa haldið áfram fjórða daginn í röð. Árásir Írana í nótt voru gerðar eftir að Ísraelar hæfðu hernaðarleg skotmörk í Íran. Ráðamenn beggja þjóða hafa heitið áframhaldandi eyðileggingu.
Myndefni AFP-fréttastofunnar sýnir ónýtar byggingar í borginni Tel Aviv og eld fyrir utan strandborgina Haifa eftir að Ísraelsher hvatti almenning til að leita skjóls frá væntanlegum flugskeytum Írana.