sun. 15. júní 2025 23:10
Jón Þór Hauksson.
„Ég ræð ekki þjálfara, hvorki í þessu félagi né öðrum“

„Þeir nýttu færin sín og sína góðu kafla í leiknum betur en við,“ sagði Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA eftir 4:1-tap gegn Aftureldingu í botnslagnum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

„Þeir nýttu færin sín og sína góðu kafla í leiknum betur en við. Við fengum svo sannarlega tækifæri til þess að koma okkur í góðar stöður og áður en þeir jafna leikinn í 1:1 þá fengum við góð færi til þess að koma okkur í 2:0 og 3:0 en við náum ekki að nýta okkar góðu kafla betur í leiknum,“ sagði Jón Þór í viðtali við mbl.is eftir leikinn.

 

Komst upp með ljót brot á gulu spjaldi 

„Síðan finnst mér vera stór atriði sem detta með þeim í þessum leik. Mér finnst Axel Óskar (Andrésson) komast upp með tvö mjög ljót brot á gulu spjaldi og rétt áður en að þeir skora annað markið þá erum við í dauðafæri hinum megin en þeir fara upp og skora og nýta sín færi betur. Eftir það fáum við þennan vítaspyrnudóm sem ég á eftir að sjá betur en þá missum við öll tök á sjálfum okkur og leiknum.“

Fannst þér stóru atriðin tengjast dómgæslunni?

Nei, það er stórt atriði að Axel komist upp með þessi tvö ljótu brot á gulu spjaldi en dómgæslan var virkilega góð hér í dag að því er ég best veit en maður er engan veginn dómbær á það frá því sem maður stendur og á eftir að sjá það betur en dómgæslan var góð.“

 

Jón Þór nýtti landsleikjapásuna vel, breytti um kerfi og gerði áherslubreytingar.

„Við fækkuðum í vörninni og ætluðum að nýta kantana betur, það vantaði oft og tíðum gæðin í síðustu sendingunum til að nýta þær eins vel og við vorum í stöðu til að gera. Mér fannst jákvætt hvað við byrjum þennan leik vel og vorum óheppnir að koma okkur ekki í mun betri stöðu áður en Afturelding skorar.“

ÍA er nú á botni deildarinnar með níu stig eftir tíu umferðir. Jón Þór er ekki að eyða tíma í að hafa áhyggjur af starfi sínu heldur er hann að einbeita sér að því að bæta ástandið.

„Ég hef áhyggjur af mörgum hlutum en þetta (að missa starfið) er ekki einn af þeim. Ég er að einbeita mér að öðrum hlutum og hef fullt af öðrum hlutum að hafa áhyggjur af. Það eru aðrir sem taka ákvarðanir um það. Ég ræð ekki þjálfara, hvorki í þessu félagi né öðrum og ég get ekkert verið að pæla í því.

Við höfum fengið fínan tíma til að undirbúa þennan leik og ég tel að við höfum unnið mjög vel í því og tel að það hafi sést vel á liðinu í dag. Við spilum að mörgu leyti fínan leik lengi framan af en náum ekki að nýta okkur það.

 

til baka