Djúpt í eyðimörk suðurhluta Túnis ganga úlfaldar í átt að suðandi mjaltavélum. Mjólk þeirra er viðfangsefni verkefnis sem leitt er af konum á svæðinu og veitir efnahagslega von fyrir íbúa sem búa flestir við bágar aðstæður.
Í fararbroddi verkefnisins er hin 32 ára gamla Latifa Frifita en hún hleypti af stokkunum fyrstu, og hingað til einu, gerilsneyðingarstöð Túnis fyrir úlfaldamjólk fyrir tveimur árum í bænum Medenine.
Stöðin byggir á rannsóknum lífefnafræðingsins Amel Sboui sem þróaði gerilsneyðingaraðferð sem varðveitir „næringarfræðilega og lækningalega eiginleika“ úlfaldamjólkur en lengir jafnframt geymsluþol hennar í tvær vikur.
Meinholl mjólk
Úlfaldamjólk inniheldur allt að fimm sinnum meira járn en kúamjólk, hún er ólíkleg til að valda ofnæmi og sumar rannsóknir hafa bent til þess að hún geti styrkt ónæmiskerfið og hafi bólgueyðandi eiginleika.
Þá hafa klínískar rannsóknir sýnt að neysla mjólkurinnar geti hjálpað fólki með sykursýki að minnka lyfjaskammta sína um allt að helming.
Gerilsneyðing úlfaldamjólkur er hins vegar nauðsynleg til að gera hana að aðgengilegri markaðsvöru þar sem mjólkin er annars mjög viðkvæm og skemmist fljótt.
Vaxandi eftirspurn
Störf og fjárfestingar í suðurhluta Túnis eru af skornum skammti en Frifita segir að úlfaldamjólkin hafi lengi verið vanmetin auðlind af hirðingjum á svæðinu en nú vill hún breyta því.
Hún segir að það hafi verið mikil áskorun að sannfæra þá um að selja mjólk úlfaldanna í stað kjöts þeirra. „Þeir sáu ekki tilganginn. Þeir halda henni venjulega fyrir sig eða gefa hana frítt.“
Með tímanum hefur henni þó tekist að byggja upp gott samband við hirðingjanna og sýnt þeim fram á eftirspurn eftir mjólkinni.
Tvöfalda framleiðsluna
Frifita, sem er með meistaragráðu í matvælatækni, hóf að móta hugmynd sína árið 2016, en það var ekki fyrr en árið 2023 sem hún hleypti gerilsneyðingarfyrirtækinu ChameLait af stokkunum.
Gerilsneyðingarstöð hennar þjónar einnig sem þjálfunarstaður fyrir hirðingja til að læra vélvædda mjaltaaðferð, sem skilar allt að sjö lítrum af mjólk á dag samanborið við aðeins tvo lítra með hefðbundnum handmjöltum.
Frifita rekur fyrirtækið nú ásamt tveimur öðrum konum og framleiðir um 500 lítra af gerilsneyddri úlfaldamjólk á viku en markmiðið er að tvöfalda framleiðsluna innan tveggja ára.