Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir Evrópusambandið vera einhuga um að Grænland sé ekki til sölu.
Macron heimsótti Grænland í dag og var tilgangur heimsóknarinnar að senda skilaboð um evrópska samstöðu og stuðning.
Gagnrýndi Trump við komuna til Grænlands
Yfirtaka Grænlands ekki í boði
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst því yfir að hann vilji ná yfirráðum yfir Grænlandi og hefur t.a.m. ekki útilokað að hervaldi yrði beitt í því skyni.
J.D. Vance, varaforseti Bandaríkjanna, heimsótti Grænland í mars og dró þar aðeins í land. Hann sagði að ekki nauðynlegt að beita hervaldi til að Bandaríkin næðu yfirráðum en taldi að Trump gæti gert samning við Grænland um yfirtöku.
Telur að ekki sé þörf á að beita hervaldi
Á blaðamannafundi á Grænlandi sagði Macron að ríki Evrópusambandsins væru sammála um að Grænland væri til sölu. Þá sagði hann ekki koma til greina að landið yrði tekið yfir að öðru ríki.
Þá sagði Macron að Frakkland væri reiðubúið að halda sameiginlegar heræfingar með með ríkjum innan Atlantshafsbandalagsins og NB8-ríkjunum til þess að tryggja öryggi.
Macron hefur nú yfirgefið Grænland og heldur til Kanada en þar verður hann viðstaddur leiðtogafund G7-ríkjanna sem fer fram 17. júní.